Flokkstjórar vinnuskóla sumarið 2022

Flokkstjórar vinnuskóla sumarið 2022

Flokkstjórar vinnuskóla

Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður og með kennslu í almennri vinnuskólavinnu. Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu opinna svæða og stofnanalóða sveitarfélagsins.

Flokkstjórar við Vinnuskólann. Í starfinu felst umsjón með vinnuhópum ungmenna á aldrinum 13 til 16 og 16 ára og eldri. Kenna ungmennum rétt vinnubrögð og bera ábyrgð á tímaskráningum ungmenna. Tryggja öryggi sitt og ungmenna við störf.

Hæfniskröfur:

  • Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára og eldri.
  • Reynsla af störfum með börnum og ungmennum æskileg.
  • Áhugi/reynsla af garðyrkjustörfum kostur.
  • Stundvísi og góð mæting skilyrði.
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum eru mikilvæg.
  • Hreint sakavottorð skilyrði.

Vinnutímabil: 1. júní – 31. ágúst. Daglegur vinnutími er 8 klst. frá kl. 8:00-12:00 og 12:30-16:00.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stéttarfélagsins Samstöðu.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2022.

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skila inn með rafrænum hætti. Umsóknareyðublað er að finna HÉR.

Var efnið á síðunni hjálplegt?