Flokkstjórar í Vinnuskóla Húnaþings vestra sumarið 2026

Flokkstjórar í Vinnuskóla Húnaþings vestra sumarið 2026

Flokksstjórar í Vinnuskólanum leiðbeina og starfa með ungmennum sem eru að klára 8., 9. og 10. bekk í grunnskóla. Flokkstjórar þurfa að geta aðstoðað nemendur með stuðningsþörf við störf og samskipti.

Vinnuskólinn sinnir kennslu í vinnu við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu opinna svæða og lóða sveitarfélagsins, ásamt því að kynna ungmennum fyrir öðrum störfum á vinnumarkaði.

Verkefni og ábyrgð:

  • Sjá um skipulagningu á verkefnum fyrir vinnuhópa í samráði við verkefnastjóra umhverfismála.
  • Tryggja öryggi sitt og ungmenna við störf.
  • Stjórna vinnuskólahópi á vettvangi, leiðbeina um rétt vinnubrögð og beitingu verkfæra.
  • Taka þátt í þeim verkum sem hópurinn sinnir og hvetja hópinn til vinnusemi og góðra verka.
  • Bera ábyrgð á að skila tímaskýrslum nemenda til verkefnastjóra umhverfismála.

Hæfniskröfur:

  • Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri.
  • Reynsla af störfum með börnum og ungmennum er æskileg.
  • Áhugi/reynsla af garðyrkjustörfum kostur.
  • Stundvísi og góð mæting er skilyrði.
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Hreint sakavottorð skilyrði.
  • Að vera ungmennum vinnuskólans góð fyrirmynd í vinnusemi, ástundun og heilbrigðum lífstíl.

Starfstímabilið er frá 25. maí - 21. ágúst 2026.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.

Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf og afrit af prófskírteinum. 

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skila inn með rafrænum hætti. Umsóknareyðublað er að finna HÉR.

Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl, 2026.

Nánari upplýsingar veitir Heiða Jack, verkefnastjóri umhverfismála í gegnum netfangið umhverfi@hunathing.is.

Var efnið á síðunni hjálplegt?