Fl(j)óð tekur enda sunnudaginn 27.ágúst

Fl(j)óð tekur enda sunnudaginn 27.ágúst

Sunnudaginn 27. ágúst er lokadagur ljósmyndasýningarinnar Fl(j)óð sem opnuð var í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga þriðjudaginn 25. júlí sl. Sýningin fékk mikið lof og myndirnar og uppsetningin öll frábærlega samansett. Einhverjar myndanna verða áfram til sýnis hér og þar um svæðið okkar. Hægt er að kaupa ljósmyndir af sýningunni. Panta má á netfanginu handbendi@gmail.com til laugardagsins 2. september og verða keypt eintök afhent í lok mánaðarins. Myndirnar munu koma til kaupanda eins og þær eru á sýningunni með hvítri karton umgjörð.

Verð á myndum er:

30x20 cm mynd kr. 15.000,-.
30x30 cm mynd kr. 25.000,-.
40x27 cm mynd kr. 35.000,-
50x150 cm (landscape stór) kr. 110.000,-.

Við þökkum fyrir frábærar viðtökur og vonandi verður bókin að veruleika árið 2024.

Var efnið á síðunni hjálplegt?