Fjárhagsáætlun 2012 - umsókn um styrki

Sveitarstjórn Húnaþings vestra vinnur nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir aðalsjóð og fyrirtæki sveitarfélagsins fyrir árið 2013. Félagasamtökum og einstaklingum í Húnaþingi vestra er hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári er bent á að senda skriflegar og undirritaðar umsóknir þar um til sveitarstjóra. Hyggist félagasamtök eða einstaklingar sækja um fjárstyrk vegna verkefnis eða málefna sem veittur var styrkur til á árinu 2012 skal nýrri umsókn fylgja skrifleg greinargerð um ráðstöfun fjárframlags ársins 2012. Umsóknir um styrki eða fjárframlög á árinu 2013 skulu hafa borist sveitarstjóra eigi síðar en 5. október nk. Umsóknir sem kunna að berast að þeim fresti liðnum munu ekki njóta forgangs við afgreiðslu sveitarstjórnar. Ekki er tekið við umsóknum í tölvupósti.

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?