Fjallskilaseðill Víðdælinga haust 2023

Fjallskilaseðill Víðdælinga haust 2023

Göngur hefjast á Víðidalstunguheiði mánudaginn 4.september.

 

Þann dag fara rekstrarmenn gangnahrossa, sem jafnframt eru undanreiðarmenn, af stað frá Hrappsstöðum kl. 11:00.

 

Næsta dag verður seinni flokkur keyrður fram og farið verður frá Hrappstöðum kl 17.

Farangur, þar með talin reiðtygi og öll gangnahross verða að vera komin kl. 10 mánudaginn 4.september í Hrappstaði.

Í fyrri göngum skal smalað bæði sauðfé og hrossum. Sauðfé verður réttað í Valdarásrétt föstudaginn 8. september kl. 09:00 og í Víðidalstungurétt laugardaginn 9. september. Hefjast réttarstörf þar kl. 10:00.

Seinni göngur hefjast föstudaginn 15. sept. og verður heiðin leituð á 3 dögum. Fæði verður í göngum í öllum náttstöðum á heiðinni.

 

Föstudaginn 6.október skulu þeir sem tilgreindir eru á gangnaseðli sækja stóð í löndin norðan heiðargirðingar. Þeir smali einnig sauðfé. Þeir sem eru tilgreindir til að smala Stóru-Hlíð og Krók smali öllu vestur í Krók.

Stóðið verður réttað í Víðidalstungurétt laugardaginn 7.október og verður stóðið rekið til réttar kl.11:00 þann dag. Gefinn er 30% afsláttur af framtöldum hrossum sem ekki hafa gengið á heiði.

Óheimilt er að taka hross úr rétt fyrir talningu þeirra.

 

Fyrri heimalandasmölun fer fram laugardaginn 23. sept. og réttað verður í Víðidalstungurétt sunnudaginn 24. sept. kl.10:00.

Seinni heimalandasmölun verður laugardaginn 14.okt. Og réttað í Víðidalstungurétt sunnudaginn 15.okt. kl. 10:00.

Ítrekum skyldur landeigenda til að gera skil á sínum löndum.

Þeir sem tilgreindir eru á gangnaseðli til að smala Litlu-Hlíðar land geri það föstudaginn fyrir heimalandasmalanir.

 

Þeir seinniflokksmenn sem ætla sér að fara ríðandi fram láti Ingvar á Syðra- Kolugili vita í síma: 847 9419 fyrir kl.20 sunnudagskvöldið 3. sept. Ætli menn að ríða með rekstrarmönnum þurfa þeir að ræða það við gangnastjóra.

Fólk sem hyggst fara með gangnamönnum skal afla sér leyfis gangnastjóra. Einnig er þeim bent á að panta fæði hjá ráðskonu (Jóhanna: 866 2912) með góðum fyrirvara. Allar nánari upplýsingar veitir Ingvar í síma 847 9419.

Hey- og fæðisgjald fyrir aukafólk sem fer með gangnamönnum er kr. 3.500 per dag. Athygli skal vakin á því að engan má senda í göngur yngri en 16.ára skv. 16.gr. Fjallskilareglugerðar Húnaþings vestra.

Gangnastjórar og aðrir sem tilgreindir eru í gangnaseðli til að hafa umsjón með fjallskilum, skipa nánar fyrir um framkvæmd þeirra.

Skoðunarmenn á óskilafé sjá einnig um skráningu þess og skila til fjallskilastjórnar.

Tímakaup vegna aukaverka: verður 3.500kr fyrir mann og fyrir fjórhjól 3.500 kr, 3.700 kr. fyrir sexhjól, samkvæmt reikningi.

 

Mælst er til þess að gangnamenn komi með nothæfar talstöðvar þar sem það léttir undir við smölun.

Gangnamenn fá vesti við upphaf gangna. Mikilvægt er að þeim sé skilað að göngum loknum. Td. í kaffiskúrinn við Víðidalstungurétt eða til Dagnýjar á Bakka.

 

Varðandi stóðsmölun í Gafli: Ef ekki næst að klára að koma fé í aðhald áður en hliðið á Bergárbrú verður opnað, verður mannskapnum skipt upp eftir þörfum. Hluti þeirra fer með stóðið niður í Kolugil, hinn hluti mannskapsins klárar smölun á fé og heldur svo áfram með stóðið frá Kolugili.

Stóðinu verður hleypt í gegnum hliðið á Bergárbrú kl. 15:00.

Farið verður frá Kolugili kl. 16:30.

Þetta skipulag er gefið út með þeim fyrirvara um að smölun gangi eðlilega fyrir sig.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?