Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2022

Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2022

Göngur fari fram laugardaginn 10. september.

 

Þorgrímsstaðadal smali 5 menn undir stjórn Lofts á Ásbjarnarstöðum.

Í þær göngur leggi til:

Ásbjarnarstaðir 3 menn, Sauðadalsá 1 mann og Sauðá 1 mann.

 

Útfjallið smali 13 menn undir stjórn Magnúsar á Bergsstöðum.

Í þær göngur leggi til:

Bergsstaðir 5 menn, Sauðadalsá 2 menn, Sauðá 5 menn og

Illugastaðir 1 mann.

 

Miðpart fjallsins smali 17 menn undir stjórn Herdísar í Grafarkoti.

Í þær göngur leggi til:

Sauðadalsá 4 menn, Syðri-Kárastaðir 1 mann, Gröf 2 menn,

Lindarberg 2 menn, Grænihvammur 1 mann, Helguhvammur I 1 mann,

Helguhvammur II 3 menn, Syðri-Vellir 1 mann og Grafarkot 2 menn.

 

Framfjallið smali 6 menn undir stjórn Indriða í Grafarkoti

Í þessar göngur leggi til:

Grafarkoti 3 menn, Múli 1 mann, Neðra-Vatnshorni 1 mann og

Vatnshóll 1 mann.

 

Til að hirða fé í Þverárrétt leggi til:

Ásbjarnarstaðir 2 menn.

Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt verður skilið eftir í Hamarsrétt.

 

Til að vakta safnið meðan réttað er í Hamarsrétt, leggi til:

Ásbjarnarstaðir 1 mann.

 

 

Marklýsingarmenn í Hamarsrétt;

Guðni Sauðá og Magnús Bergsstöðum.

 

Réttarstjórn í Hamarsrétt; Þormóður Sauðadalsá.

 

Almenn skyldusmölun verður 8. október.

Ekki er gert ráð fyrir eftirleit, en metið verður seinna í haust hvort þörf er á

því.

Gangnamat kr. 5.000,-

Gangna- og réttarstjórn kr. 2.500,-

Vakta safnið kr. 1.200.-

Marklýsing kr. 1.000.-

Þverárrétt kr. 4.500,-

Fjallskilagjald á kind kr. 60,-

Fjallskilagjald á hross kr. 120,-

Skyldusmölun á hrossum verður laugardaginn 29. október.

 

Hvammstanga 19. ágúst 2022.

 

Tómas Örn Daníelsson

Halldór Líndal Jósafatsson

Ágúst Jóhann Þorbjörnsson

Var efnið á síðunni hjálplegt?