Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2021

Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2021

Göngur fari fram laugardaginn 11. september 2021.

 

Þorgrímsstaðadal smali 5 menn undir stjórn Lofts Guðjónssonar á Ásbjarnarstöðum.

Í þær göngur leggi til;

Ásbjarnarstaðir 3 menn, Sauðadalsá 1 mann, Sauðá 1 mann. Smalað verður norður og réttað á Ásbjarnarstöðum.

 

 

Útfjallið smali 13 menn undir stjórn Stellu á Sauðá.

Í þær göngur leggi til;

Bergsstaðir 5 menn, Sauðadalsá 2 menn, Sauðá 5 menn,Illugasaðir1 mann.

 

 

Miðpart fjallsins smali 17 menn undir stjórn Herdísar í Grafarkoti.

Í þær göngur leggi til;

Sauðadalsá 4 menn, Gröf 2 menn, Lindarberg 2 menn,

Grænihvammur 1 mann, Helguhvammur I 1 mann,

Helguhvammur II 3 menn, Syðri-Vellir 1 mann, Grafarkot 3 menn.

 

 

Framfjall

Bændur á svæðinu hafa óskað eftir að fá að hreinsa svæðið í heimasmölun dagana fyrir göngur. Bændur á svæðinu sjá sjálfir um skipulag leitar og skil í samstarfi við bændur í Fjallskiladeild Vesturhóps sem land eiga í austurhluta framfjallsins.

Í þessar smalanir leggi til:

Vatnshóll 1 mann, Neðra-Vatnshorni 1 mann, Múli 1 mann,

Grafarkoti 2 menn.

 

Ljóst er samkvæmt leiðbeiningum frá MAST þá vantar á svæðið skilarétt til flokkunar á haustin, sem staðsett væri á landsvæði þar sem ekki er fjárbúskapur.

Til að hirða fé í Þverárrétt leggi til;

Ásbjarnarstaðir 2 menn.

Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt verður skilið eftir í Hamarsrétt.

 

Til að vakta safnið meðan réttað er í Hamarsrétt, leggi til;

Ásbjarnarstaðir 1 mann.

 

Marklýsingarmenn í Hamarsrétt;

Guðni Sauðá og Magnús Bergsstöðum

 

Réttarstjórn í Hamarsrétt; Þormóður Ingi Heimisson, Sauðadalsá.

 

 

 

 

Almenn skyldusmölun verður 09. október.

Ekki er gert ráð fyrir eftirleit, en metið verður seinna í haust hvort þörf er á því.

 

 

 

Gangnamat kr. 5.000,-

Gangna- og réttarstjórn kr. 2.500,-

Vakta safnið kr 1.200.-

Marklýsing kr. 1.000.-

Þverárrétt kr. 4.500,-

 

Fjallskilagjald á kind kr. 60,-

Fjallskilagjald á hross kr. 120,-

 

 

Skyldusmölun á hrossum verður laugardaginn 30. október 2021

 

 

 

Hamarsrétt 23. ágúst 2021

 

Þormóður Ingi Heimisson

Ágúst Jóhann Þorbjörnsson

Auðbjörg Kristín Magnúsdóttir

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?