Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2020

Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2020

Göngur  fari fram laugardaginn 12. september 2020.

 

Þorgrímsstaðadal smali 5 menn undir stjórn Lofts Guðjónssonar á Ásbjarnarstöðum.

Í þær göngur leggi til;

Loftur Ásbjarnarstöðum 3 menn, Þorbjörg og Óskar Þorgrímsstöðum 2 menn.  Smalað verður norður og réttað á Ásbjarnarstöðum.

 

Útfjallið smali 13 menn undir stjórn Stellu á Sauðá.

Í þær göngur leggi til;

Magnús Bergsstöðum 5 menn, Þormóður Sauðadalsá 2 menn,

Sauðá 5 menn, Æðarvarp Illugastöðum 1 mann.

 

Miðpart fjallsins smali 17 menn undir stjórn Herdísar í Grafarkoti.

Í þær göngur leggi til;

Þormóður Sauðadalsá 4 menn,

Ágúst Gröf  2 menn,Kolbrún Stella Lindarbergi 2 menn, Jón Hilmar Grænahvammi 1 mann, Þorbjörg Helguhvammi 1  mann, Magnús Helguhvammi 3 menn, Pálmi Syðri-Völlum 1 mann,

Indriði Grafarkoti 3 menn.

 

Fremsta hluta fjallsins smali 7 menn undir stjórn Halldórs í Vatnshól.

Í þær göngur leggi til;

Halldór Vatnshól 5 menn,  Múli 1 mann,

Indriði Grafarkoti 1 mann

Smalað verður austur og réttað í Vatnshól.

 

Til að hirða fé í Þverárrétt leggi til;

Loftur Ásbjarnarstöðum 2 menn. Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt verður skilið eftir í Hamarsrétt.

 

Til að vakta safnið meðan réttað er í Hamarsrétt, leggi til;

Loftur Ásbjarnastöðum 2 menn.

 

Marklýsingarmenn í  Hamarsrétt;

Guðni Sauðá og Halldór Vatnshól

 

Réttarstjórn í Hamarsrétt; Þormóður Ingi Heimisson, Sauðadalsá.

 

 

 

 

Almenn skyldusmölun verður 10. október.

Ekki er gert ráð fyrir eftirleit, en metið verður seinna í haust hvort þörf er á því.

Var efnið á síðunni hjálplegt?