Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2018

Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2018

Göngur  fari fram laugardaginn 08. september 2018.

 

Þorgrímsstaðadal smali 5 menn undir stjórn Lofts Guðjónssonar á Ásbjarnarstöðum.

Í þær göngur leggi til;

Loftur Ásbjarnarstöðum 3 menn, Þorbjörg og Óskar Þorgrímsstöðum 2 menn.  Smalað verður norður og réttað á Ásbjarnarstöðum.

Útfjallið smali 13 menn undir stjórn Benedikts á Bergsstöðum.

Í þær göngur leggi til;

Benedikt Bergsstöðum 5 menn, Þormóður Sauðadalsá 3 menn,

Sauðá 4 menn, Æðarvarp Illugastöðum 1 mann.

Miðpart fjallsins smali 17 menn undir stjórn Herdísar í Grafarkoti.

Í þær göngur leggi til;

Sauðá 1 mann, Þormóður Sauðadalsá 3 menn,

Ágúst Gröf  2 menn,Kolbrún Stella Lindarbergi 2 menn, Jón Hilmar Grænahvammi 1 mann, Guðmundur Helguhvammi 1  mann,

Magnús Helguhvammi 3 menn, Pálmi Syðri-Völlum 1 mann,

Indriði Grafarkoti 3 menn.

Fremsta hluta fjallsins smali 7 menn undir stjórn Halldórs í Vatnshól.

Í þær göngur leggi til;

Halldór Vatnshól 5 menn, Sigurbjartur Múla 1 mann,

Indriði Grafarkoti 1 mann

Smalað verður austur og réttað í Vatnshól.

 

Til að hirða fé í Þverárrétt leggi til;

Loftur Ásbjarnarstöðum 2 menn. Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt verður skilið eftir í Helguhvammi og Hamarsrétt.

 

Til að vakta safnið meðan réttað er í Hamarsrétt, leggi til;

Loftur Ásbjarnastöðum 2 menn.

 

Marklýsingarmenn í  Hamarsrétt;

Guðni Sauðá og Halldór Vatnshól

 

Réttarstjórn í Hamarsrétt; Þormóður Ingi Heimisson, Sauðadalsá.

 

 

 

 

Almenn skyldusmölun verður 13. október.

Ekki er gert ráð fyrir eftirleit, en metið verður seinna í haust hvort þörf er á því.

 

 

 

Gangnamat                    kr. 3.500,-

Gangna- og réttarstjórn  kr. 2.500,-

Vakta safnið                  kr  1.200.-

Marklýsing                    kr. 1.000.-

Þverárrétt                      kr. 4.500,-

 

Fjallskilagjald á kind      kr.     60,-

Fjallskilagjald á hross      kr.   120,-

 

Skyldusmölun á hrossum verður laugardaginn 03. nóvember 2018.

 

 

 

 

 

Grænahvammi 19. ágúst 2018

 

Þormóður Ingi Heimisson

Ágúst Þorbjörnsson

Auðbjörg Kristín Magnúsdóttir

Var efnið á síðunni hjálplegt?