Fjallskilaseðill Vatnsnesinga 2017

Fjallskilaseðill Vatnsnesinga 2017

Þorgrímsstaðadal smali 5 menn undir stjórn Lofts Guðjónssonar á Ásbjarnarstöðum.

Í þær göngur leggi til;

Loftur Ásbjarnarstöðum 3 menn, Þorbjörg og Óskar Þorgrímsstöðum 2 menn.  Smalað verður norður og réttað á Ásbjarnarstöðum.

Útfjallið smali 13 menn undir stjórn Benedikts á Bergsstöðum.

Í þær göngur leggi til;

Benedikt Bergsstöðum 5 menn, Þormóður Sauðadalsá 3 menn,

Ellert Sauðá 4 menn, Æðarvarp Illugastöðum 1 mann.

Miðpart fjallsins smali 17 menn undir stjórn Herdísar í Grafarkoti.

Í þær göngur leggi til;

Ellert Sauðá 1 mann, Þormóður Sauðadalsá 3 menn,

Ágúst Gröf  2 menn,Kolbrún Stella Lindarbergi 2 menn, Jón Hilmar Grænahvammi 1 mann, Guðmundur Helguhvammi 1  mann, Magnús Helguhvammi 3 menn, Pálmi Syðri-Völlum 1 mann,

Indriði Grafarkoti 3 menn.

Fremsta hluta fjallsins smali 7 menn undir stjórn Halldórs í Vatnshól.

Í þær göngur leggi til;

Halldór Vatnshól 5 menn, Sæþór Múla 1 mann,

Indriði Grafarkoti 1 mann

Smalað verður austur og réttað í Vatnshól.

 

Til að hirða fé í Þverárrétt leggi til;

Loftur Ásbjarnarstöðum 2 menn. Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt verður skilið eftir í Helguhvammi og Hamarsrétt.

Til að vakta safnið meðan réttað er í Hamarsrétt, leggi til;

Loftur Ásbjarnastöðum 2 menn.

 

Marklýsingarmenn í  Hamarsrétt;

Guðni Sauðá og Halldór Vatnshól

 

Réttarstjórn í Hamarsrétt; Þormóður Ingi Heimisson, Sauðadalsá.

 

Almenn skyldusmölun verður 14. október.

Ekki er gert ráð fyrir eftirleit, en metið verður seinna í haust hvort þörf er á því.

 

Gangnamat                      kr. 3.500,-

Gangna- og réttarstjórn   kr. 2.500,-

Vakta safnið                    kr  1.200.-

Marklýsing                      kr. 1.000.-

Þverárrétt                        kr. 4.500,-

 

Fjallskilagjald á kind      kr.     60,-

Fjallskilagjald á hross      kr.   120,-

 

Skyldusmölun á hrossum verður laugardaginn 21. október 2017.

 

Hamarsbúð 17. ágúst 2017

Þormóður Ingi Heimisson

Sigurður Magnús Guðmundsson

Auðbjörg Kristín Magnúsdóttir

Var efnið á síðunni hjálplegt?