Fjallskilaseðill í fyrrum Bæjarhreppi 2015

Laugardaginn 19. september ber að leita fyrstu leit í Bæjarhreppi.

Réttað verður sama dag að Hvalsá. Réttarstjóri er Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir og er einnig í annari leit. Ákveðið hefur verið að leita Kvíslarland 1. leit, föstudaginn 18. september.

Önnur leit fer fram laugardaginn 3. október. Þá skulu ábúendur hafa leitað heimalönd sín. Utanbæjarfé á að koma til réttar í tæka tíð.

Réttað verður í Hvalsá sunnudaginn 4. október kl 13.00.

Ekki er heimilt að sleppa fé í beitarhólfið við Hvalsárrétt fyrr en laugardaginn 12. september og ekki fyrr en viku fyrir aðra leit. Þriðja leit verður ákveðin síðar svo og leitir innan varnarlínu við Fjarðarhorn.

 

Fjáreigendur leggi til menn í göngur og réttir samkvæmt meðfylgjandi seðli.

Leitarstjórar skulu gæta þess að samræmi sé með leitum á samliggjandi leitarsvæðum

 

Leitarmenn á Heydals og Hrafnadalsfjalli leiti niður Hvalsárlönd.

Önnur leit á Hrafnadalsfjalli fari þannig fram, Bakkadalur leitaður niður að Bæ og Ljótunnarstöðum og hinn hlutinn niður Hvalsárlönd. Ef fjáreigendur mæta ekki til leitar verði leitarstjóra og/eða oddvita heimilt að ráða leitarmenn á þeirra kostnað.

 

Tilhögun þriðju leitar verður ákveðin síðar en fjáreigiendum ber að leggja menn í þá leit sem neðan greinir.

Kvíslarland 3. leit. Kjörseyri ehf Kjörseyri 1. Jóhann Laxárdal 1. Áslaug Valdasteinsstöðum 1.

Leitarstjóri: Ingimar Kjörseyri

Hrafnadalsfjall 3. leit. Gunnar Bæ 1. Þórarinn Bæ 1. Ragnar Kollsá 1. Björgvin Ljótunnarstöðum 1.

Leitarstjóri: Gunnar Bæ.

Heydalsfjall 3. Leit. Hannes Kolbeinsá 2. Útrækt ehf Guðlaugsvík 1. Sveinbjörn Skálholtsvík 1 Guðmundur skálholtsvík 1.

Leitarstjóri: Hannes Kolbeinsá.

 

Óvíst er að fé sem kemur í utansveitarréttum verði dreift heim á bæina. Fjáreigendur mega búast við að þurfa að sækja fé sitt þangað sem sundurdráttur fer fram eða í rétt á Hvalsá.

 

Mælst er til þess við leitarmenn að þeir klæðist áberandi fatnaði og skal leitarstjóri minna leitarmenn á það.

 

Fjallskilum er jafnað niður með kr. 85.- á hverja fullorðna sauðkind.

Fyrir dagsverkið er greitt kr 5500.-

Til jöfnunar á fjallskilum og greiðslu á ýmsum kostnaði greiðist í/úr fjallskilasjóði eins og fram kemur á leitarseðli.

 

Samkvæmt ósk Landgræðslu Ríkisins um upplýsingar um fjárfjölda úr Dalabyggð sem kemur fram í öðrum réttum/leitum, skal réttarstjóri sjá til þess að skrá þann fjölda fjár úr Dalabyggð sem sóttur er í Hvalsárrétt í samráði við þá er sjá um flutning þess. Einnig er því beint til ábúenda að halda utanum þann fjölda sem sóttur er á hvern stað eftir því sem kostur er á í samráði við þá aðila sem sjá um flutning þess.

 

 

 

Stjórn fjallskiladeildar fyrrum Bæjarhrepps

Var efnið á síðunni hjálplegt?