Fjallskilaseðill í Bæjarhreppi 2022

Fjallskilaseðill í Bæjarhreppi 2022

Laugardaginn 17. september ber að leita fyrstu leit í Bæjarhreppi.
Réttað verður sama dag að Hvalsá.

Réttarstjóri er Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir og er einnig í annari leit. Ákveðið hefur verið að leita Kvíslarland 1. leit, föstudaginn 16. september.
Önnur leit fer fram laugardaginn 1. október. Þá skulu ábúendur hafa leitað heimalönd sín. Utanbæjarfé á að koma til réttar í tæka tíð.
Réttað verður í Hvalsá sunnudaginn 2. október kl 13.00.
Ekki er heimilt að sleppa fé í beitarhólfið við Hvalsárrétt fyrr en laugardaginn 10. september og ekki fyrr en viku fyrir aðra leit. Þriðja leit verður ákveðin síðar svo og leitir innan varnarlínu við Fjarðarhorn.

Fjáreigendur leggi til menn í göngur og réttir samkvæmt meðfylgjandi seðli.
Upplýsingar um fjárfjölda eru fengnar úr forðagæsluskýrslum.
Leitarstjórar skulu gæta þess að samræmi sé með leitum á samliggjandi leitarsvæðum

Leitarmenn á Heydals og Hrafnadalsfjalli leiti niður Hvalsárlönd.
Önnur leit á Hrafnadalsfjalli fari þannig fram, Bakkadalur leitaður niður að Bæ og Ljótunnarstöðum og hinn hlutinn niður Hvalsárlönd. Ef fjáreigendur mæta ekki til leitar verði leitarstjóra og/eða sveitarstjóra heimilt að ráða leitarmenn á þeirra kostnað.

Tilhögun þriðju leitar verður ákveðin síðar en fjáreigendum ber að leggja menn í þá leit sem neðan greinir.
Kvíslarland 3. leit. Kjörseyri ehf Kjörseyri 1. Jóhann Laxárdal 1. Áslaug Valdasteinsstöðum 1.
Leitarstjóri: Ingimar Kjörseyri
Hrafnadalsfjall 3. leit. Gunnar Bæ 1. Heiðar Þór Bæ 1. Ragnar Kollsá 1. Björgvin Ljótunnarstöðum 1.
Leitarstjóri: Ragnar Kollsá
Heydalsfjall 3. Leit. Hannes Kolbeinsá 2. Samson Guðlaugsvík 1. Guðmundur Skálholtsvík 2
Leitarstjóri: Hannes Kolbeinsá

Óvíst er að fé sem kemur í utansveitarréttum verði dreift heim á bæina. Fjáreigendur mega búast við að þurfa að sækja fé sitt þangað sem sundurdráttur fer fram eða í rétt á Hvalsá.

Fjallskilum er jafnað niður með kr. 115.- á hverja fullorðna sauðkind.
Fyrir dagsverkið er greitt kr 6200.-
Til jöfnunar á fjallskilum og greiðslu á ýmsum kostnaði greiðist í/úr fjallskilasjóði eins og fram kemur á leitarseðli.

Fjallskilastjórn vill leggja áherslu á að leitarmenn klæðist ávalt áberandi fatnaði og hesta- og hjólamenn noti hjálma. Skal leitarstjóri sjá til þess og sýna jafnframt gott fordæmi.

 

Stjórn fjallskiladeildar Bæjarhrepps

Var efnið á síðunni hjálplegt?