Fjallskilaseðill Hrútfirðinga að austan haust 2023

Fjallskilaseðill Hrútfirðinga að austan haust 2023
Á fundi stjórnar Fjallskiladeildar Hrútfirðinga að austan þann 9. ágúst 2023 var samþykkt að í haust verði fjallskil á svæðinu með eftirfarandi hætti:
 
Fyrsta leit fari fram fimmtudaginn 7. og föstudaginn 8. september og réttað verði að morgni laugardagsins 9. september. Leit skal haga þannig að allt svæðið, þ.e. bæði heiðin og Meladalur verði smöluð á sama tíma.
 
Kl. 12:00 að morgni fimmtud. 7. september skulu 7 gangnamenn vera ferðafærir við Bláhæð.
Verkefni þeirra verður að smala fremsta hluta heiðarinnar eins langt og tími leyfir.
Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Eyjanes 1. - Reykir II 2. - Akurbrekka 1. –
Þóroddsstaðir 1. - Bálkastaðir I 2.
 
Að kvöldi fimmtudagsins 7. september skulu vera mættir 20 gangnamenn í Skútaskála.
Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Eyjanes 2. - Reykir II 3. - Akurbrekka 3. - Þóroddsstaðir 3. - Brautarholt 1. –
Hvalshöfði 1. - Bálkastaðir I 5. - Hrútatunga 2.
 
Að morgni föstudagsins 8. september kl. 8.00 skulu vera mættir 5 gangnamenn við Bláhæð. Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Reykir II 2. - Akurbrekka 1. – Þóroddsstaðir 1. – Bálkastaðir I 1.
 
Fjallkóngur í 1. leit er Þorsteinn á Reykjum.
 
Réttarstörf hefjast kl. 9.00 laugardaginn 9. september.
 
Réttarstjóri í Hrútatungurétt verði Guðmundur á Jaðri .
 
Marklýsing er í höndum Aðalheiðar á Reykjum og Matthildar Hjálmarsdóttur.
 
Skilamaður í Miðfjarðarrétt verði Ásgeir í Brautarholti.
 
Akstur á fé úr Miðfjarðarrétt Brautarholtsbúið.
 
Kerra fram að hliði að austan, Þóroddstaðabúið.
 
Æskilegt er að leitarmenn séu klæddir litsterkum utanyfirfötum á meðan leit stendur og noti viðeigandi öryggishjálma/búnað. Munið eftir skærlitu vestunum.
 
Gangnamenn yngri en 16 ára verða ekki teknir gildir sem leitarmenn nema með samþykki Fjallkóngs.
 
Ákveði fjallskilanefnd að fella niður eitthvað af álagðri fjallskilavinnu munu viðkomandi aðilar ekki fá
hana greidda. Sama gildir ef menn skila ekki þeirri vinnu sem á þá er lögð.
 
Leitarmenn eru minntir á að leitum er ekki lokið fyrr en allt
safnið er komið inn í safngirðingu!
 
 
Önnur leit fari fram laugardaginn 16. september. Nema veður hamli. Gangnamenn skulu vera ferðafærir kl. 8.30 við Leirhnjúk.
Eftirtalin bú leggi til gangnamenn, alls 14, þar af 3 á Meladal:
Eyjanes 1. - Reykir II 2. - Akurbrekka 2. - Þóroddsstaðir 1. - Brautarholt 1. –
Bálkastaðir I 3. - Hrútatunga 1.
Á Meladal: Reykir II 1. - Þóroddsstaðir 1. - Bálkastaðir I 1.
 
Fjallkóngur í 2. leit verði Þorsteinn á Reykjum.
 
Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit: Búið á Reykjum II.
 
Akstur á fé úr Dæld í annari leit: Hrútatungubúið.
 
Heimalandasmalanir verði tvær. Sú fyrri fari fram laugardaginn 30. september og
skilarétt fari fram sunnudaginn 1. október og hefjist kl. 10.00
 
Réttarstjóri í Skilarétt verði Jón Kr. Hrútatungu.
 
Marklýsing er í höndum Aðalheiðar á Reykjum og Matthildar Hjálmarsdóttur.
 
Skilamaður í skilarétt Miðfirðinga verði Gunnar á Þóroddsstöðum.
 
Akstur á fé úr skilarétt Þóroddstaðabúið. Fé ekið til réttar nema annað komi fram síðar.
 
Mælst til að fé bíði í sem skemmstan tíma í safngirðingu fyrir skilarétt.
 
Seinni heimalandasmölun fari fram laugardaginn 14. október
og segi menn til fjár er fram kemur þá.
 
 
Mat á fjallskilaskyldri vinnu:
 
Fyrsta leit, mæting á Bláhæð 1. sept. 36.400,-kr
Fyrsta leit, mæting í skála að kvöldi 1.sept. 24.900,-kr
Fyrsta leit, mæting á Bláhæð 2. sept. 21.500,-kr
Önnur leit, smölun á afrétt 21.500,-kr
Önnur leit, smölun á Meladal 19.400, kr
Fjallkóngur 25% af gangnamati
Réttarstjórn í aðalrétt og skilarétt 9.500,-kr pr. rétt
Marklýsing í aðalrétt og skilarétt 6.300,-kr
Skilamaður Miðfjarðarrétt 14.900,-kr
Akstur á fé úr Miðfjarðarrétt 19.450,-kr pr. ferð
Skilarétt Miðfirði og akstur 9.950,- + 19.450,-kr pr. ferð
Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit 19.450,-kr pr. ferð
Akstur á fé úr Dæld í annari leit 18.300,-kr pr. Ferð
 
 
Fjallskilastjórn Hrútfirðinga.
 
Var efnið á síðunni hjálplegt?