Fjallskilaseðill Hrútfirðinga að austan 2019

Fjallskilaseðill Hrútfirðinga að austan 2019

Á fundi stjórnar Fjallskiladeildar Hrútfirðinga að austan þann 14. ágúst 2019

var samþykkt að í haust verði fjallskil á svæðinu með eftirfarandi hætti:

 

Fyrsta leit fari fram fimmtudaginn 5. og  föstudaginn 6. september og réttað verði að morgni laugardagsins 7. september.  Leit skal haga þannig að allt svæðið, þ.e. bæði heiðin og Meladalur verði smöluð á sama tíma.

 

Kl. 12:00  á hádegi fimmtudaginn 5. september skulu 7 leitarmenn vera ferðafærir við Bláhæð.  Verkefni þeirra verður að smala fremsta hluta heiðarinnar. 

Eftirtalin bú leggi til þessa menn:   Eyjanes 1 mann - Reykir II 2 menn - Akurbrekka 1 mann - Þóroddsstaðir 2 menn - Óspaksstaðir 1 mann

 

Að kvöldi fimmtudagsins 5. september skulu vera mættir 20  leitarmenn í leitarmannaskála.  Eftirtalin bú leggi til þessa menn:  Jaðar 1 mann - Eyjanes 2 menn -  Reykir II 3 menn - Akurbrekka 3 menn - Þóroddsstaðir 3 menn - Brautarholt 1 mann - Hvalshöfði 1 mann - Bálkastaðir I 2 menn - Hrútatunga 1 mann - Óspaksstaðir 3 menn.

 

Að morgni föstudagsins 6. september kl. 8.00skulu vera mættir 5 leitarmenn við Bláhæð.  Eftirtalin bú leggi til menn:   Reykir II 2 menn -  Akurbrekka 1 mann - Þóroddsstaðir 1 mann - Óspaksstaðir 1 mann.

 

Fjallkóngur í  1. leit er Þorsteinn á Reykjum.

 

Réttarstörf hefjast kl. 9.00  laugardaginn 7. september.

 

Réttarstjóri í Hrútatungurétt verði  Guðmundur á Jaðri .

Marklýsing er í höndum Aðalheiðar á Reykjum og Matthildar Hjálmarsdóttur.

 

Skilamaður í Miðfjarðarrétt verði Ásgeir í Brautarholti.

Akstur á fé úr Miðfjarðarrétt Brautarholtsbúið.

 

Æskilegt er að leitarmenn séu klæddir litsterkum utanyfirfötum á meðan leit stendur og noti viðeigandi öryggishjálma/búnað.

 

Munið eftir skærlitu vestunum, þið sem hafið þau!

 

Leitarmenn eru minntir á að leitum er ekki lokið fyrr en allt

safnið er komið inn í safngirðingu!

 

Önnur leit fari fram laugardaginn 14. September.

Nema veður hamli.  Leitarmenn skulu vera ferðafærir  kl. 8.30  við Leirhnjúk.

Eftirtalin bú leggi til menn, alls 15, þar af 3 á Meladal:

Tannstaðabakki 1 mann - Eyjanes 1 mann - Reykir II 2 menn - Akurbrekka 2 menn - Þóroddsstaðir 1 mann - Brautarholt 1 mann - Hvalshöfði 1 mann - Bálkastaðir I 1 mann - Hrútatunga 1 mann - Óspaksstaðir 1 mann.

Á Meladal:  Reykir II 1 mann -  Þóroddsstaðir 1 mann - Óspaksstaðir 1 mann.

 

Fjallkóngur í 2. leit verði Þorsteinn á Reykjum.

 

Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit:  Búið á Reykjum II.

Akstur á fé úr Dæld í annari leit:  Jaðarsbúið.

 

Heimalandasmalanir verði tvær.  Sú fyrri fari fram laugardaginn 28. september og

skilarétt fari fram sunnudaginn 29. september og hefjist  kl. 10.00

 

Seinni heimalandasmölun  fari fram laugardaginn 12. október

og segi menn til fjár er fram kemur þá.

 

Skilamaður í skilarétt Miðfirðinga verði Gunnar á Þóroddsstöðum.

Akstur á fé úr skilarétt Þóroddstaðabúið

 

Mat á fjallskilaskyldri vinnu:

 

Fyrsta leit, mæting á Bláhæð 5. sept.              28.950,-kr

Fyrsta leit, mæting í skála            að kvöldi 5.sept.     20.550,-kr

Fyrsta leit, mæting á Bláhæð 6. sept.              17.510,-kr

Önnur leit, smölun á afrétt                                 18.250,-kr

Önnur leit, smölun á Meladal                            13.700,-kr

Leitarstjóri                                                              25% af gangnamati

Réttarstjóri                                                             9.850,-kr

Marklýsing                                                              3.250,-kr

Skilamaður Miðfjarðarrétt                                 11.000,-kr

Akstur á fé úr Miðfjarðarrétt                             14.500,-kr pr. ferð

Skilarétt Miðfirði og akstur                                 6.000,- + 14.500,-kr pr. ferð

Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit          14.500,-kr pr. ferð

Akstur á fé úr Dæld í annari leit                         14.500,-kr pr. ferð

 

                                                                    Fjallskilastjórn Hrútfirðinga að austan

Var efnið á síðunni hjálplegt?