Fjallskilaboð Víðdælinga 2020

Fjallskilaboð Víðdælinga 2020

Göngur hefjast á Víðidalstunguheiði mánudaginn 31. Ágúst 2020

 

Þann dag fara rekstrarmenn gangnahrossa, sem jafnframt eru undanreiðarmenn, af stað frá Hrappsstöðum kl.11:00.

 

Næsta dag verður seinniflokkur keyrður fram og farið verður frá Hrappsstöðum kl.17.

Farangur, þar með talin reiðtygi og öll gangnahross verða að vera komin kl. 10 mánudaginn 31. Ágúst í  Hrappsstaði 

Í fyrri göngum skal smalað bæði sauðfé og hrossum. Sauðfé verður réttað í Valdarásrétt föstudaginn 4. Sept kl.09:00 og í Víðidalstungurétt laugardaginn 5. sept. og hefjast réttarstörf þar kl. 10:00.

 

Seinni göngur hefjast föstudaginn 11. september og verður heiðin leituð á þremur dögum.

Fæði verður í göngum í öllum náttstöðum á heiðinni.

 

Föstudaginn 2.október skulu þeir sem tilgreindir eru á gangnaseðli sækja stóð í löndin norðan heiðargirðingar. Þeir smali einnig sauðfé. Þeir sem eru tilgreindir til að smala Stóru – Hlíð og Krók smali öllu vestur í Krók.

Stóðið verður réttað í Víðidalstungurétt laugardaginn 3. okt og verður stóðið  rekið til réttar kl 11:00 þann dag. Talning hrossa fer eingöngu fram í aðalrétt  og verður gefinn 30% afsláttur af framtöldum hrossum sem ekki hafa gengið á heiði.

Óheimilt er að taka hross úr réttinni fyrir talningu þeirra.

 

Fyrri heimalanda smölun fer fram laugardaginn 19. september og réttað verði í Víðidalstungurétt sunnudaginn 20. sept kl: 10:00.

Seinni heimalanda smölun verður laugardaginn 10. október og réttað í Víðidalstungurétt sunnudaginn 11.okt kl:10:00.

 Ítrekum skyldur landeigenda til að gera skil á sínum löndum.

Þeir sem tilgreindir eru á gangnaseðli til að smala Litlu-Hlíðar land, geri það föstudaginn fyrir heimalandasmalanir.

 

Þeir  seinniflokks menn sem ætla sér að fara ríðandi fram láti Ísólf á Lækjamóti vita í síma: 8991146 fyrir kl 20 sunnudagskvöldið 30. ágúst

Ætli menn að ríða með rekstramönnum þurfa þeir að ræða það við gangnastjóra.

 

 Fólk sem hyggst fara með gangnamönnum skal afla sér leyfis gangnastjóra. Einnig er þeim bent á að panta fæði hjá ráðskonu (Jóhanna: 866 2912) með góðum fyrirvara. Allar nánari upplýsingar veitir Ísólfur í síma: 8991146.

 Hey- og fæðisgjald fyrir aukafólk sem fer með gangnamönnum er kr. 3.500 per dag.

Athygli skal vakin á því að engan má senda í göngur yngri en 16. ára, samkvæmt 16.gr Fjallskilareglugerðar  Húnaþings vestra.

 Gangnastjórar og aðrir sem tilgreindir eru í gangnaseðli til að hafa umsjón með fjallskilum, skipa nánar fyrir um framkvæmd þeirra.

Skoðunarmenn á óskilafé sjá einnig um skráningu þess og skila til fjallskilastjórnar.

 

 

 

 

Tímakaup vegna aukaverka: verður 2.500 kr. fyrir mann og fyrir hjól 2.625 kr., hvort tveggja samkvæmt reikningi.

 

 

Mælst er til þess að gangnamenn komi með nothæfar talstöðvar. Þar sem það léttir undir við smölun.

Gangnamenn fá vesti við upphaf gangna. Mikilvægt er að þeim sé skilað að göngum loknum. T.d í kaffiskúrinn við Víðidalstungurétt eða til Stínu í Miðhópi.

 

 

Við höldum áfram með þróunina á stóðsmölun. Það er bætt við einum manni í Gaflinn, þannig að ef ekki næst að klára að koma fé í aðhald áður en hliðið á Bergárbrú verður opnað, verður mannskapnum skipt upp eftir þörfum. Hluti þeirra fer með stóðið niður í Kolugil, hinn hluti mannskapsins klárar verkið varðandi féð og heldur svo áfram með stóðið frá Kolugili.

Hleypt verður í gegn um hliðið á Bergárbrú kl:15:00

Farið verður frá Kolugili kl: 17:00

Þetta skipulag er gefið út með fyrirvara um að smölun gangi eðlilega fyrir sig vegna veðurs.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?