Fjallskilaboð Vatnsnesinga 2025

Fjallskilaboð Vatnsnesinga 2025

Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2025

Göngur fari fram laugardaginn 13. september

Þorgrímsstaðadal smali 5 menn undir stjórn Lofts á Ásbjarnarstöðum.
Í þær göngur leggi til:
Ásbjarnarstaðir 3 menn, Sauðadalsá 1 mann og Sauðá 1 mann.

Útfjallið smali 13 menn undir stjórn Magnúsar á Bergsstöðum.
Í þær göngur leggi til:
Bergsstaðir 5 menn, Sauðadalsá 2 menn, Sauðá 5 menn og Illugastaðir 1 mann.

Miðpart fjallsins smali 17 menn undir stjórn Herdísar í Grafarkoti.
Í þær göngur leggi til:
Sauðadalsá 4 menn, Syðri-Kárastaðir 1 mann, Gröf 2 menn, Lindarberg 2 menn, Grænihvammur 1 mann, Helguhvammur I 1 mann, Helguhvammur II 3 menn, Syðri-Vellir 1 mann og Grafarkot 2 menn.

Framfjallið smali 8 menn undir stjórn Indriða í Grafarkoti.
Í þær göngur leggi til:
Grafarkoti 2 menn, Múli 2 menn, Neðra-Vatnshorn 1 mann og Vatnshóll 3 menn.

Til að hirða fé í Þverárrétt.
Ásbjarnarstaðir 2 menn.
Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt verður skilið eftir í Hamarsrétt.

Til að vakta safnið meðan réttað er í Hamarsrétt.
Ásbjarnarstaðir 1 mann.

Marklýsingarmenn í Hamarsrétt:
Guðni Sauðá og Magnús Bergsstöðum


Réttarstjórn í Hamarsrétt: Þormóður Sauðadalsá.

Almenn skyldusmölun verður 11. október.

  • Gangnamat kr. 6.000,-

  • Gangna- og réttarstjórn kr. 3.000,-

  • Vakta safnið kr. 1.500,-

  • Marklýsing kr. 1.250,-

  • Þverárétt kr. 5.500,-

Fjallskilagjald á kind kr. 75,-
Fjallskilagjald á hross kr. 150,-

Var efnið á síðunni hjálplegt?