Fjallskilaboð Miðfjörður

Fjallskilaboð Miðfjörður

Tímanlega fimmtudaginn 7. september n.k. skulu allir leitarmenn vera mættir á fremstu bæjum, tilbúnir að leggja upp á heiðar undir stjórn leitarstjóranna.  Gangnamenn yngri en 16 ára verða ekki teknir gildir sem leitarmenn nema með samþykki viðkomandi leitarstjóra. Í 1. leit skal smala ofan bæði sauðfé og hrossum.  Skulu hross af öllum viðkomandi heiðum sett til geymslu í girðinguna norðan við Laxahvamm. Gangi leitir samkvæmt áætlun, skulu þeir sem reka stóðið frá heiðargirðingum í safngirðingu að kvöldi 8. sept. koma því til réttar laugardaginn 9. sept. kl. 9  f.h. og hefst  þá stóðrétt. Fjárrétt hefst síðar sama dag, strax og söfnin koma til réttar.

Fjallskilanefnd beinir því til leitarstjóra að láta smala syðri hluta afréttar fimmtudaginn 7. sept. ef veður leyfir.

Ákveði fjallskilanefnd að fella niður eitthvað af álagðri fjallskilavinnu munu viðkomandi aðilar ekki fá hana greidda. Sama gildir ef menn skila ekki þeirri vinnu sem á þá er lögð.

Leitarstjórar skulu brýna fyrir mönnum sínum að hefja ekki leit fyrr en fullvíst er að röð leitarmanna geti haldist á heiðum.

Fjallskilanefnd mælist eindregið til þess við gangnamenn, að þeir klæðist áberandi  hlífðarfatnaði og noti viðeigandi öryggishjálma í göngum. 

Vinna eftirtalinna manna verður sem hér segir í 1. leit:

 

Aðalbólsheiði:

Kjálki:

Kristófer Finnmörk 2 menn og sé Kristófer leitarstjóri, Ólafur Urriðaá 1 mann, Gunnar E-Fitjum 1 mann, Kjartan  Barkarstöðum 1 mann, Pétur Torfustöðum 2 menn, reki þeir stóð til réttar og sé annar þeirra rekstrarstjóri. Níels Fitjum 2 menn og reki þeir stóð til réttar.

 

Tungan:

Ari Guðmundur Bergsstöðum 1 mann og sé Ari leitarstjóri, Félagsbúið Ósi 3 menn, Þorvaldur Ytra-Bjargi 1 mann, Reykjaháls ehf 2 menn, Valur Bjargi  2 menn.      

 

Athugið:        

Af ofantöldum mönnum þurfa ekki að mæta fyrr en með bílnum á fimmtudag.  Gangnamaður Kjartans, gangnamaður Þorvaldar, annar maður Kristófers og annar maður Níelsar.

 

Akstur á Aðalbólsheiði:      

Níels Fitjum, á að fara frá Laugarbakka fimmtudaginn 7. sept. kl. 1500   stundvíslega.

 

 

 

 

 

Núpsheiði:

Þórarinn Rafnsson 3 menn og sé Þórarinn leitarstjóri, Rafn á Staðarbakka 4 menn og útvegi flutningshest, Sigfús Jónsson 1 mann, Guðný Bessastöðum 1 mann,  Gísli Staðarbakka 3 menn og reki einn þeirra stóð til réttar, Magnús Magnússon 3 menn og reki þeir stóð til réttar og sé Magnús rekstrarstjóri. Guðmundur Neðra-Núpi 3 menn. Sigurður Ingvi Bálkastöðum 1 mann og reki hann stóð til réttar, Guðni Þór  Melstað 1 mann og reki hann stóð til réttar. Davíð Tjarnarkoti 1 mann.

Akstur að heiðargirðingu:  Guðmundur Neðra-Núpi.   

 

Húksheiði:

Már Hermannsson 2 menn, Gunnlaugur Söndum 1 mann, Félagsbúið Skarfshóli 1 mann, Félagsbúið Búrfelli 2 menn og útvegi Félagsbúið flutningshest. Böðvar Sigvaldi Mýrum 2 menn og sé Böðvar Sigvaldi leitarstjóri, Páll Jóhannesson 1 mann, Karl Mýrum 1 mann. Helgi Huppahlíð 2 menn.

Akstur að heiðargirðingu:  Félagsbúið Búrfelli.

 

Riminn:

Gunnar Fitjum 1 mann og reki hann stóð af Núpsheiði til safngirðingar, Helgi Huppahlíð 1 mann og Karl Mýrum 1 mann og smali hann austur í Núpsdal.

 

Athugið:

Gangnamaður frá félagsbúinu Skarfshóli og 1 maður frá Helga í Huppahlíð reki stóð af Húksheiði til réttar ef það er til staðar. Ef ekki er stóð til að reka til réttar af Húksheiði þá reki áðurnefndir menn fjársafnið til réttar ásamt öðrum gangnamönnum.

Marklýsing á sauðfé: Ari Skarfshóli og Gerður Reykjum.

Marklýsing á hrossum: Eggert Bjargshóli og Sigurður Ingvi Bálkastöðum.

Réttarstjóri í öllum réttum: Helgi Heggsstöðum.

Hirða fé (og setja á bíla) úr Hrútatungurétt (aðalrétt og seinni rétt): Ingimar Uppsölum og Ingi Hjörtur N-Svertingsstöðum. Flytja fé úr Hrútatungurétt, (aðalrétt og seinni rétt.) Karl á Mýrum, Böðvar Sigvaldi á Mýrum, Rafn Staðarbakka.

 

Heimalandasmölun verði laugardaginn 23.september og skilarétt sunnudaginn 24. september kl. 1400.

Þá er landeigendum bent á V. Kafla 28.grein fjallskilasamþykktar fyrir Húnaþing vestra, um hreinsun heimalanda og fjallskil en þar segir:

“Ábúenda eða eigenda jarðar er skylt að smala land sitt og þau heimalönd sem hann hefur til umráða svo oft sem fjallskilastjórn ákveður þótt hann eigi ekki fjárvon sjálfur. Einnig eftir að skyldusmölun er lokið sé grunur um að þar sé búfé að finna. Geri hann það ekki skal fjallskilastjórn láta smala landið á kostnað eigenda. Skilarétt skal halda haust hvert og á þeim stað og tíma sem fjallskilastjórn ákveður “.

 

Ábúendur eða eigendur jarða skulu koma óskilafé til skilaréttar í tæka tíð þann 24. September.

 

Fjallskilaboð þetta er skv. ákvörðun fjallskilanefndar Miðfirðinga frá 14. ágúst s.l.

                                               

Var efnið á síðunni hjálplegt?