Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2012
Göngur fari fram laugardaginn 15. september 2012.
Þorgrímsstaðadal smali 5 menn undir stjórn Lofts Guðjónssonar á Ásbjarnarstöðum.
Í þær göngur leggi til;
Loftur Ásbjarnarstöðum 3 menn, Þorbjörg og Óskar Þorgrímsstöðum
2 menn. Smalað verður norður og réttað á Ásbjarnarstöðum.
Útfjallið smali 13 menn undir stjórn Benedikts á Bergsstöðum.
Í þær göngur leggi til;
Benedikt Bergsstöðum 5 menn, Þormóður Sauðadalsá 4 menn,
Ellert Sauðá 4 menn.
Miðpart fjallsins smali 17 menn undir stjórn Herdísar í Grafarkoti.
Í þær göngur leggi til;
Ellert Sauðá 1 mann, Þormóður Sauðadalsá 1 mann, Jón Loftur
Kárastöðum 2 menn,Kolbrún Stella Lindarbergi 1 mann, Jón Hilmar
Grænahvammi 1 mann, Guðmundur Helguhvammi 2 menn, Magnús
Helguhvammi 3 menn, Pálmi Syðri-Völlum 1 mann, Indriði
Grafarkoti 5 menn.
Fremsta hluta fjallsins smali 7 menn undir stjórn Halldórs í Vatnshól.
Í þær göngur leggi til;
Halldór Vatnshól 4 menn, Rúnar Vatnshorni 3 menn.
Smalað verður austur og réttað á Neðra-Vatnshorni.
Til að hirða fé í Þverárrétt leggi til;
Loftur Ásbjarnarstöðum 2 menn og hafi annar þeirra umsjónina.
Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt verður skilið eftir í Helguhvammi og
Hamarsrétt.
Til að vakta safnið meðan réttað er í Hamarsrétt, leggi til;
Hjálmar frá Bergsstöðum 2 menn.
Marklýsingarmenn í Hamarsrétt;
Ellert Sauðá og Halldór Vatnshól
Réttarstjórn í Hamarsrétt; Þormóður Ingi Heimisson, Sauðadalsá.
Almenn skyldusmölun verður í október, nánar auglýst síðar. Ekki er gert ráð fyrir eftirleit, en metið verður seinna í haust hvort þörf er á því.
Gangnamat kr. 3.500,-
Gangna- og réttarstjórn kr. 2.500,-
Vakta safnið kr. 950,-
Marklýsing kr. 300,-
Þverárrétt kr. 4.500,-
Eftirleit kr. 2.000,-
Fjallskilagjald á kind kr. 60,-
Skyldusmölun á hrossum verður laugardaginn 3. nóvember 2012.
Melavegur 1 Hvt. 02. september 2012.
Loftur Sv. Guðjónsson
Halldór Líndal Jósafatsson
J. Óskar Sigurbjörnsson