Hér fyrir neðan birtum við fjallskilaboð allra fjallskiladeilda í Húnaþingi vestra jafnóðum og þau berast.
Fjallskilaboð Miðfirðinga haustið 2026
Í fyrstu leit skal smala ofan bæði sauðfé og hrossum. Tímanlega fimmtudaginn 3. september n.k. skulu allir leitarmenn vera mættir á fremstu bæji, tilbúnir að leggja upp á heiðar undir stjórn leitarstjóra. Gangnamenn yngri en 16 ára verða ekki teknir gildir sem leitarmenn nema með samþykki viðkomandi leitarstjóra.
Gangi leitir samkvæmt áætlun, skulu þeir sem reka stóðið frá heiðargirðingum í safngirðingu við Laxahvamm að kvöldi 4. september komi því til réttar sunnudaginn 6. september kl 10.30 og hefst stóðrétt kl 11. Fjárrétt verður laugardaginn 5. september og hefst strax og söfn koma til réttar um hádegi.
Fjallskilanefnd beinir því til leitarstjóra að láta smala syðri hluta afréttar fimmtudaginn 3. september ef veður leyfir.
Ákveði fjallskilanefnd að fella niður eitthvað af álagðri fjallskilavinnu munu viðkomandi aðilar ekki fá hana greidda. Sama gildir ef menn skila ekki þeirri vinnu sem á þá er lögð. Leitarstjórar skulu brýna fyrir mönnum sínum að hefja ekki leit fyrr en fullvíst er að röð leitarmanna geti haldist á heiðum.
Fjallskilanefnd mælist eindregið til þess við gangnamenn að þeir klæðist áberandi hlífðarfatnaði og noti viðeigandi öryggisbúnað í göngum. Vinna eftirtalinna manna verður sem hér segir í 1 leit.
Aðalbólsheiði
Kjálki
Kristófer Finnmörk, 2 menn og sé Kristófer leitarstjóri, Ari G Bergstöðum 1 mann, Ólafur Urriðaá 1 mann, Jóhannes Geir Efri-Fitjum 2 menn, , Pétur Torfustöðum 2 menn, reki þeir stóð til réttar og sé annar þeirra rekstrarstjóri. Guðrún Fitjum 1 mann og reki hann stóð til réttar.
Tungan
Gunnar Ægir Reykjum 4 menn og sé Gunnar leitarstjóri, Félagsbúið Ósi 3 menn, Ebba Barkarstöðum 1 mann, Hjörtur Gylfi Bjargi 1 mann og reki þeir hross til réttar.
Akstur á Aðalbólsheiði:
Kristófer Finnmörk á að fara frá Laugarbakka fimmtudaginn 3. september eigi síðar en kl 15:00 eða í samráði við sína gangnamenn.
Núpsheiði
Þórarinn Óli Rafnsson 3 menn, sé Þórarinn leitarstjóri og flytji trúss, Rafn á Staðarbakka 2 menn, Sigfús Jónsson 1 mann, Guðný Bessastöðum 1 mann, Gísli Staðarbakka 2 menn. Magnús Magnússon Lækjarbakka 3 menn og reki þeir stóð til réttar og sé Magnús rekstrarstjóri. Guðmundur Neðra-Núpi 2 menn. Sigurður Ingvi Bálkastöðum 2 menn og reki þeir stóð til réttar. Magnús Magnússon Melstað 2 menn og reki annar þeirra stóð til réttar. Davíð Tjarnarkoti 1 mann. Sveinbjörn Sveðjustöðum 1 mann. Elmar Brúarholti 1 mann.
Akstur að heiðargirðingu: Sigurður Ingvi Bálkastöðum.
Akstur gagnamanna í Úlfsvatn: Gísli Grétar Magnússon Staðarbakka.
Húksheiði
Birkir Söndum 2 menn, Félagsbúið Skarfshóli 1 mann, Félagsbúið Búrfelli 2 menn, Böðvar Sigvaldi Mýrar 2 menn, sé Böðvar Sigvaldi leitarstjóri og flytji trúss. Páll Jóhannesson 1 mann, Karl Mýrum 3 menn, Karl á Haugi 1 mann
Akstur að heiðargirðingu: Böðvar Sigvaldi Böðvarsson
Riminn
Gunnar Fitjum 1 mann og reki hann stóð af Núpsheiði til safngirðingar, Karl Mýrum 2 menn og smali þeir austur Núpsdal.
Athugið
Gangnamaður frá félagsbúinu Skarfshóli og 1 maður frá Kalla á Haugi reki stóð af Húksheiði til réttar ef það er til staðar. Ef ekki er stóð til að reka til réttar af Húksheiði þá reki áðurnefndir menn fjársafnið til réttar ásamt öðrum gangnamönnum.
Marklýsing á sauðfé: Ari Skarfshóli og Gerður á Reykjum.
Marklýsing á hrossum: Eggert Bjargshóli og Sigurður Ingvi Bálkastöðum.
Réttarstjórar í fjár- og hrossarétt 5. og 6. september: Helgi Pálsson Heggstöðum og Sveinbjörn Sveðjustöðum, réttarstjóri í skilarétt 27. September Helgi Pálsson.
Hirða fé (og setja á bíla) úr Hrútatungurétt (aðalrétt og seinni rétt): Ingi Hjörtur Neðri Svertingsstöðum 2 menn. Flytja fé úr Hrútatungurétt; Hjörtur á Bjargi, Böðvar Sigvaldi Mýrum og Rafn á Staðarbakka.
Heimalandasmölun verði laugardaginn 26. september og skilarétt sunnudaginn 27. september kl 13:00.
Ábúendur eða eigendur jarða skulu koma óskilafé til skilaréttar. Athugið að ekki verður boðið upp á hólf fyrir sauðfé við skilarétt að svo stöddu.
Fjallskilaboð þetta er samkvæmt ákvörðun fjallskilanefndar Miðfirðinga frá 5. ágúst 2026.
Dagbjört Diljá Einþórsdóttir
Þórarinn Óli Rafnsson
Stella Dröfn Bjarnadóttir
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Fjallskiladeild Víðdælinga
GANGNASEÐILL ÁRIÐ 2026
Göngur hefjast á Víðidalstunguheiði þriðjudaginn 1. september.
Þann dag fara rekstrarmenn gangnahrossa, af stað frá Hrappstöðum kl. 11:00 einnig þann sama dag fara 10 hjól fram og smala fyrir framan fellaskála brottför frá Hrappstöðum kl. 07:00, þeir gangnamenn sem ekki fara ríðandi verða keyrðir fram og farið verður frá Hrappstöðum kl. 17. Farangur, þar með talin reiðtygi og öll gangnahross verða að vera komin kl. 10 þriðjudaginn 1. september í Hrappstaði.
Í fyrri göngum skal smalað bæði sauðfé og hrossum. Sauðfé verður réttað í Valdarárrétt föstudaginn 4. september kl. 09:00 og í Víðidalstungurétt laugardaginn 5. september. Hefjast réttarstörf þar kl. 10:00.
Seinni göngur hefjast laugardaginn 26. september. Heiðin verður leituð á 2 dögum á hjólum og mun fjallskiladeild greiða eldsneytiskostnað vegna seinni ganga gegn framvísun nótu. Ef einhver kýs að fara ríðandi í seinni göngur verður viðkomandi að vera í sambandi við gangnastjóra seinni ganga. Nánari upplýsingar veitir Friðrik Lækjarmóti í síma 899 7222.
Fæði verður í göngum í öllum náttstöðum á heiðinni.
Föstudaginn 2. október skulu þeir sem tilgreindir eru á gangnaseðli sækja stóð í löndin norðan heiðargirðingar. Þeir smali einnig sauðfé. Þeir sem eru tilgreindir til að smala Stóru-Hlíð og Krók smali öllu vestur í Krók.
Stóðið verður réttað í Víðidalstungurétt laugardaginn 3. október og verður stóðið rekið til réttar kl. 11:00 þann dag. Gefinn er 30% afsláttur af framtöldum hrossum sem ekki hafa gengið á heiði.
Óheimilt er að taka hross úr rétt fyrir talningu þeirra.
Nauðsynlegt er að gangnamenn stóðsmölunar séu með tvo hesta til reiðar.
Frekari upplýsingar má fá hjá Pétri leitarstjóra í Gaflsmölun í síma 892 2569 og Garðari leitarstjóra í Króki í síma 862 2209.
Fyrri heimalandasmölun fer fram laugardaginn 19. sept. og réttað verður í Víðidalstungurétt sunnudaginn 20. sept. kl. 10:00.
Seinni heimalandasmölun verður laugardaginn 10. okt. og réttað í Víðidalstungurétt sunnudaginn 11. okt. kl. 10:00.
Ítrekum skyldur landeigenda til að gera skil á sínum löndum.
Þeir sem tilgreindir eru á gangnaseðli til að smala Litlu-Hlíðar land geri það föstudaginn fyrir heimalandasmölunar.
Þeir gangnamenn sem ætla sér að fara ríðandi fram láti Ingvar á Syðra-Kolugili vita í síma: 847 9419 fyrir kl.20 mánudagskvöldið 31.ágúst. Ætli menn að ríða með rekstrarmönnum þurfa þeir að ræða það við gangnastjóra.
Fólk sem hyggst fara með gangnamönnum skal afla sér leyfis gangnastjóra. Einnig er þeim bent á að panta fæði hjá ráðskonu (Jóhanna: 866 2912) með góðum fyrirvara. Allar nánari upplýsingar veitir Ingvar í síma 847 9419.
Hey- og fóðurjald fyrir aukafólk sem fer með gangnamönnum er kr. 3.500 per dag. Athygli skal vakin á því að einnig má senda í göngur yngri en 16 ára skv. 16.gr. Fjallskilareglugerðar Húnavatnssýslu vestra.
Gangnastjórar og aðrir sem tilgreindir eru í gangnaseðli til að hafa umsjón með fjallskilum, skipa nánar fyrir um framkvæmd þeirra.
Skoðunarmaður á óskilafé sér einnig um skráningu þess og skilar til fjallskilastjórnar.
Tímakaup vegna aukaverka: verður 4.065 kr. fyrir mann og fyrir fjórhjól 4.065 kr. 4.285kr. fyrir sexhjól, samkvæmt reikningi. Ofan á þessi verð leggst 24% vsk.
Mælst er til þess að gangnamaður komi með nothæfar talstöðvar þar sem það léttir undir við smölun. Gangnamenn fá vesti við upphaf ganga. Mikilvægt er að þeim sé skilað að göngum loknum.
Td. í kaffiskúrinn við Víðidalstungurétt eða til Ingvars á Kolugili.
Varðandi stóðsmölun í Gafli: Ef ekki næst að klára að koma fé í aðhald áður en hliðið á Bergárbrú verður opnað, verður mannskapnum skipt upp eftir þörfum. Hluti þeirra fer með stóðið niður í Kolugil, hinn hluti mannskapsins klárar smölun á fé og heldur svo áfram með stóðið frá Kolugili.
Áætlað er að stóðinu verði hleypt í gegnum hliðið á Bergárbrú kl. 15:00.
Farið verður frá Kolugili kl. 16:30.
Þetta skipulag er gefið út með þeim fyrirvara um að smölun gangi eðlilega fyrir sig.
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Fjallskiladeild Hrútfirðinga að vestan
Fjallskilaseðill í Bæjarhreppi 2026
Laugardaginn 12. september ber að leita fyrstu leit í Bæjarhreppi.
Réttað verður sama dag að Hvalsá. Réttarstjóri er Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir og er einnig í annari leit. Ákveðið hefur verið að leita Kvíslarland 1. leit, fimmtudag og föstudag 10. og 11. september.
Önnur leit fer fram laugardaginn 26. september. Þá skulu ábúendur hafa leitað heimalönd sín. Utanbæjarfé á að koma til réttar í tæka tíð.
Réttað verður í Hvalsá sunnudaginn 27. september kl 13.00.
Ekki er heimilt að sleppa fé í beitarhólfið við Hvalsárrétt fyrr en laugardaginn 5. september og ekki fyrr en viku fyrir aðra leit. Þriðja leit verður ákveðin síðar svo og leitir innan varnarlínu við Fjarðarhorn.
Fjáreigendur leggi til menn í göngur og réttir samkvæmt meðfylgjandi seðli.
Upplýsingar um fjárfjölda eru fengnar úr forðagæsluskýrslum.
Leitarstjórar skulu gæta þess að samræmi sé með leitum á samliggjandi leitarsvæðum
Leitarmenn á Heydals og Hrafnadalsfjalli leiti niður Hvalsárlönd.
Önnur leit á Hrafnadalsfjalli fari þannig fram, Bakkadalur leitaður niður að Bæ og Ljótunnarstöðum og hinn hlutinn niður Hvalsárlönd. Ef fjáreigendur mæta ekki til leitar verði leitarstjóra og/eða sveitarstjóra heimilt að ráða leitarmenn á þeirra kostnað.
Tilhögun þriðju leitar verður ákveðin síðar en fjáreigendum ber að leggja menn í þá leit sem neðan greinir.
Kvíslarland 3. leit. Ingimar Kjörseyri 1. Jóhann Laxárdal 1. Áslaug Valdasteinsstöðum 1.
Leitarstjóri: Ingimar Kjörseyri
Hrafnadalsfjall 3. leit. Róbert Bæ 1. Heiðar Þór Bæ 1. Ragnar Kollsá 1. Ólafur Skúli Ljótunnarstöðum 1.
Leitarstjóri: Ragnar Kollsá
Heydalsfjall 3. Leit. Jón Ómar Kolbeinsá 2. Samson Guðlaugsvík 1. Guðmundur Skálholtsvík 2
Leitarstjóri: Hannes Kolbeinsá
Óvíst er að fé sem kemur í utansveitarréttum verði dreift heim á bæina. Fjáreigendur mega búast við að þurfa að sækja fé sitt þangað sem sundurdráttur fer fram eða í rétt á Hvalsá.
Fjallskilum er jafnað niður með kr. 135.- á hverja fullorðna sauðkind.
Fyrir dagsverkið er greitt kr 7000.-
Til jöfnunar á fjallskilum og greiðslu á ýmsum kostnaði greiðist í/úr fjallskilasjóði eins og fram kemur á leitarseðli.
Ákveði fjallskilanefnd að fella niður eitthvað af álagðri fjallskilavinnu munu viðkomandi aðilar ekki fá hana greidda. Sama gildir ef menn skila ekki þeirri vinnu sem á þá er lögð.
Gangnamenn yngri en 16 ára verða ekki teknir gildir sem leitarmenn nema með samþykki Fjallkóngs
Fjallskilastjórn vill leggja áherslu á að leitarmenn klæðist ávalt áberandi fatnaði og hesta- og hjólamenn noti hjálma. Skal leitarstjóri sjá til þess og sýna jafnframt gott fordæmi.
Stjórn fjallskiladeildar Bæjarhrepps
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Fjallskiladeild Hrútfirðinga að vestan
Fjallskilaseðill
2026
Á fundi stjórnar Fjallskiladeildar Hrútfirðinga að austan þann 14. ágúst 2026 var samþykkt að í haust verði fjallskil á svæðinu með eftirfarandi hætti:
Fyrsta leit fari fram fimmtudaginn 3. og föstudaginn 4. september og réttað verði að morgni laugardagsins 5. september. Leit skal haga þannig að allt svæðið, þ.e. bæði heiðin og Meladalur verði smöluð á sama tíma.
Kl. 12:00 að morgni fimmtud. 3. september skulu 7 gangnamenn vera ferðafærir við Bláhæð.
Verkefni þeirra verður að smala fremsta hluta heiðarinnar eins langt og tími leyfir.
Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Eyjanes 1. - Reykir II 2. - Akurbrekka 1. –
Þóroddsstaðir 1. - Bálkastaðir I 2.
Að kvöldi fimmtudagsins 3. september skulu vera mættir 20 gangnamenn í Skútaskála.
Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Eyjanes 2. - Reykir II 3. - Akurbrekka 2. - Þóroddsstaðir 3. - Brautarholt 1. – Bálkastaðir I 6. - Hrútatunga 3.
Að morgni föstudagsins 4. september kl. 8.00 skulu vera mættir 5 gangnamenn við Bláhæð. Eftirtalin bú leggi til gangnamenn: Reykir II 2. - Akurbrekka 2. – Þóroddsstaðir 1.
Fjallkóngur í 1. leit er Þorsteinn á Reykjum.
Réttarstörf hefjast kl. 9.00 laugardaginn 5. september.
Réttarstjóri í Hrútatungurétt verði Guðmundar á Jaðri
Marklýsing er í höndum Aðalheiðar á Reykjum og Alberts í Eyjanesi
Skilamaður í Miðfjarðarrétt verði Ásgeir í Brautarholti.
Akstur á fé úr Miðfjarðarrétt Brautarholtsbúið.
Kerra fram að hliði að austan, Þóroddstaðabúið.
Æskilegt er að leitarmenn séu klæddir litsterkum utanyfirfötum á meðan leit stendur og noti viðeigandi öryggishjálma/búnað. Munið eftir skærlitu vestunum.
Gangnamenn yngri en 16 ára verða ekki teknir gildir sem leitarmenn nema með samþykki Fjallkóngs.
Ákveði fjallskilanefnd að fella niður eitthvað af álagðri fjallskilavinnu munu viðkomandi aðilar ekki fá
hana greidda. Sama gildir ef menn skila ekki þeirri vinnu sem á þá er lögð.
Leitarmenn eru minntir á að leitum er ekki lokið fyrr en allt
safnið er komið inn í safngirðingu!
Önnur leit fari fram laugardaginn 12. september. Nema veður hamli. Gangnamenn skulu vera ferðafærir kl. 8.30 við Leirhnjúk.
Eftirtalin bú leggi til gangnamenn, alls 14, þar af 3 á Meladal:
Eyjanes 1. - Reykir II 2. - Akurbrekka 2. - Þóroddsstaðir 1. - Brautarholt 1. –
Bálkastaðir I 3. - Hrútatunga 1.
Á Meladal: Reykir II 1. - Þóroddsstaðir 1. - Bálkastaðir I 1.
Fjallkóngur í 2. leit verði Þorsteinn á Reykjum.
Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit: Búið á Reykjum II.
Akstur á fé úr Dæld í annari leit: Hrútatungubúið.
Heimalandasmalanir verði tvær. Sú fyrri fari fram laugardaginn 26. september og
skilarétt fari fram sunnudaginn 27. september og hefjist kl. 10.00
Réttarstjóri í Skilarétt verði Guðmundur á Jaðri.
Marklýsing er í höndum Aðalheiðar á Reykjum og Alberts í Eyjanesi
Skilamaður í skilarétt Miðfirðinga verði Gunnar á Þóroddsstöðum.
Akstur á fé úr skilarétt Þóroddstaðabúið. Fé ekið til réttar nema annað komi fram síðar.
Mælst til að fé bíði í sem skemmstan tíma í safngirðingu fyrir skilarétt.
Seinni heimalandasmölun fari fram laugardaginn 10. október
og segi menn til fjár er fram kemur þá.
Mat á fjallskilaskyldri vinnu:
Fyrsta leit, mæting á Bláhæð 3. sept. 42.500,-kr
Fyrsta leit, mæting í skála að kvöldi 3.sept. 29.200,-kr
Fyrsta leit, mæting á Bláhæð 4. sept. 25.900,-kr
Önnur leit, smölun á afrétt 25.900,-kr
Önnur leit, smölun á Meladal 23.700, -kr
Fjallkóngur 25% af gangnamati
Réttarstjórn í aðalrétt og skilarétt 10.900,-kr pr. rétt
Marklýsing í aðalrétt og skilarétt 7.250,-kr
Skilamaður Miðfjarðarrétt 17.500,-kr
Akstur á fé úr Miðfjarðarrétt 23.700,-kr pr. ferð
Skilarétt Miðfirði og akstur 13.200,- + 23.700,-kr pr. ferð
Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit 22.600,-kr pr. ferð
Akstur á fé úr Dæld í annari leit 20.400,-kr pr. Ferð
Fjallskilastjórn Hrútfirðinga
Bjarni Kristmundsson
Brynjar Æ. Ottesen
Jón Kristján Sæmundsson
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2026
Göngur fari fram laugardaginn 12. september
Þorgrímsstaðadal smali 5 menn undir stjórn Lofts á Ásbjarnarstöðum.
Í þær göngur leggi til:
Ásbjarnarstaðir 3 menn, Sauðadalsá 1 mann og Sauðá 1 mann.
Útfjallið smali 13 menn undir stjórn Magnúsar á Bergsstöðum.
Í þær göngur leggi til:
Bergsstaðir 5 menn, Sauðadalsá 2 menn, Sauðá 5 menn og Illugastaðir 1 mann.
Miðpart fjallsins smali 17 menn undir stjórn Herdísar í Grafarkoti.
Í þær göngur leggi til:
Sauðadalsá 5 menn, Syðri-Kárastaðir 1 mann, Gröf 2 menn, Lindarberg 2 menn, Grænihvammur 1 mann, Helguhvammur I 1 mann, Helguhvammur II 3 menn og Grafarkot 2 menn.
Framfjallið smali 8 menn undir stjórn Indriða í Grafarkoti
Í þær göngur leggi til: Grafarkoti 2 menn, Múli 2 menn, Neðra-Vatnshorn 1 mann og Vatnshóll 3 menn.
Til að hirða fé í Þverárrétt.
Ásbjarnarstaðir 2 menn.
Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt verður skilið eftir í Hamarsrétt.
Til að vakta safnið meðan réttað er í Hamarsrétt.
Ásbjarnarstaðir 1 mann.
Marklýsingarmenn í Hamarsrétt:
Guðni Sauðá og Magnús Bergsstöðum
Réttarstjórn í Hamarsrétt: Þormóður Sauðadalsá.
Almenn skyldusmölun verður 10.október.
Gangnamat kr. 6.000,-
Gangna- og réttarstjórn kr. 3.000,-
Vakta safnið kr 1.500.-
Marklýsing kr. 1.250.-
Þverárrétt kr. 5.500,-
Fjallskilagjald á kind kr. 75,-
Fjallskilagjald á hross kr. 150,-
Gröf 30.júlí 2026
Þormóður Heimisson
Ágúst Þorbjörnsson
Indriði Karlsson
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
FJALLSKILABOÐ
fyrir Þverárhrepp hinn forna, haustið 2026
Laugardaginn 12. september 2026 skulu fara fram göngur og önnur fjallskil í Þverárhreppi hinum forna, svo sem hér segir:
TUNGAN:
Smalað í vikunni fyrir réttir.
Leiti 4 menn: 1 frá Elmari Tjörn, 1 frá Baldri Saurbæ, 1 frá Viðari Neðri-Þverá, 1 frá Lofti Ásbjarnastöðum og sé Baldur þar gangnastjóri.
ÚTFJALLIÐ OFAN VIÐ BRÚN:
Leiti 7 menn: 2 Baldri Saurbæ, 3 frá Elmari Tjörn, 1 frá Viðari N-Þverá, 1 frá Halldóri Súluvöllum og sé Halldór þar gangnastjóri.
ÚTFJALLIÐ AUSTANVERT:
Leiti 4 menn: 1 frá Valdimar Kistu, 2 frá Viðari N-Þverá og 1 frá Ægissíðu. Efsti maður á útfjallið austanvert gangi vestan við Ægissíðuskál fram brúnir ofan við Kistu og niður á milli fjalla sunnan við Hóla.
FRAMFJALLIÐ:
Leiti 11 menn: 6 frá Jóni og Ingveldi Böðvarshólum, 2 frá Jósef Breiðabólsstað, 3 frá Tryggva Hvoli og sé Tryggvi þar gangnastjóri.
ÞVERÁRGIL, KAMBAR:
Leiti 2 menn: 2 frá Jósef Breiðabólsstað.
KVÍYNDIÐ:
Leiti 4 menn: 2 frá Halldóri Svanssyni Efri Þverá. 2 frá Viðari N-Þverá og sé Viðar þar gangnastjóri.
FYRIRSTAÐA:
Við Þverárbrú: 2 frá Viðari N-Þverá.
Fyrirstaða við Þverárbrú, varni rennsli búfjár austur um.
AFRÉTTARDALI:
Leiti 3 menn: 3 frá Lofti Ásbjarnarstöðum og sjái Loftur um starfið.
ÁSABÆI:
Leiti 2 menn: 1 frá Viðari Neðri-Þverá, 1 frá Jóni og Ingveldi Böðvarshólum og sé Viðar þar gangnastjóri. Gangnastjóri ákveði í samráði við hlutaðeigandi hvenær smölun fari fram.
Útfjall Austursíða, austan Þórsár:
Leiti 4 menn: 4 frá Halldóri Súluvöllum og sjái Halldór um starfið.
ÖNNUR RÉTTARSTÖRF:
Marklýsing og töfludráttur: Viðar Neðri-Þverá og Halldór Súluvöllum.
Réttarstjórn: Viðar Neðri-Þverá.
Hamarsrétt: Lofti Guðjónssyni er falin umsjón ásamt aðstoðarmanni.
GANGNAMAT 2026
Göngur í fjalli. kr. 6.000,-
Göngur á Ásabæi kr 4000,-
Töfludráttur og Marklýsing kr 2000-
Réttarstjórn kr. 6.000,-
Gangnastjórn kr. 3000,-
Fyrirstaða kr 2000-
Hamarsrétt kr. 5000,-
Gjald á kind 60/-.
Gjald á hross 120/-.
Ákveðið er að rétta sama dag og gengið er. Fari svo að veður hamli göngum, þennan tiltekna dag, skal þeim frestað með samráði gangnastjóra.
Gangnastjórar skulu hafa samráð um hvenær göngur hefjist um morguninn og stjórna sameiginlega innrekstri fjárins í safngirðinguna og má enginn gangnamaður yfirgefa safnið án leyfis, fyrr en því er lokið.
Gangnamenn skulu gæta þess, að smala í samhliða línu, eftir því sem tök eru á og fara ekki langt á undan þeim sem verða fyrir töfum.
Auk réttarstjórnar í fjár og hrossaréttum, fylgist réttarstjóri með og sjái um sundurdrátt á fénaði, sem til skila kann að koma í Þverárrétt síðar á haustinu.
Þeir sem ekki inna þau störf af hendi, sem á þá eru lögð, skv. framanrituðu, án löglegra forfalla, greiði þau sbr. reglugerð.
HROSSASMÖLUN: 2026
Ákveðið er, að skilarétt á hrossum verði laugardaginn 26. september nk. (síðasta laugardag í september) og hefjast þær kl. 12:30. Ókunnum hrossum sem kunna að koma fyrir á bæjum í smalamennsku fyrir réttirnar, sé komið í Þverárrétt.
Ennfremur er bændum heimilt að reka hross sín þann dag í réttina, til sundurdráttar og sýnis, eins og verið hefur.
Fjallskilastjórn Vesturhóps.