FJALLSKILABOÐ fyrir Þverárhrepp hinn forna, haustið 2021

FJALLSKILABOÐ   fyrir Þverárhrepp hinn forna, haustið 2021

FJALLSKILABOÐ

fyrir Þverárhrepp hinn forna, haustið 2021

 

 

Laugardaginn 11. september 2021 skulu fara fram göngur og önnur fjallskil í Þverárhreppi hinum forna, svo sem hér segir:

 

TUNGUNA - SKAL SMALA FIMMTUDAGINN 9. SEPTEMBER

 

Leiti 4 menn:1 frá Elmari Tjörn, 1 frá Baldri Saurbæ, 1 frá Birni Bjarghúsum, 1 frá Viðari Neðri-Þverá og sé Baldur þar gangnastjóri.

 

 

ÚTFJALLIÐ OFAN VIÐ BRÚN:

 

Leiti 9 menn: 2 Baldri Saurbæ, 1 frá Elmari Tjörn, 1 frá Viðari N-Þverá, 1 frá Báru Hólum, 1 frá Jóni Katadal, 1 frá Guðmundi í Krossanesi, 1 frá Guðmanni Harastöðum, 1 frá Halldóri Súluvöllum og sé Halldór þar gangnastjóri

 

ÚTFJALLIÐ AUSTANVERT:

Leiti 4 menn:

1 frá Valdimar Kistu, 2 frá Viðari N-Þverá og 1 frá Ægissíðu og sé Valdimar Kistu þar gangnastjóri.

Efsti maður á útfjallinu austanverðu gangi vestan við Ægissíðuskál fram brúnir ofan við Kistu og niður á milli fjalla sunnan við Hóla.

 

FRAMFJALLIÐ:

 

Leiti 13 menn:5 frá Jóni og Ingveldi Böðvarshólum, 4 frá Kristjáni Breiðabólsstað,

1 frá Guðmundi Jóhannessyni, 1 frá Eggerti Klömbrum,

2 frá Tryggva Hvoli og sé Tryggvi þar gangnastjóri.

 

ÞVERÁRGIL, KAMBAR:

 

Leiti 6 menn:2 frá Kristjáni Breiðabólsstað og 4 frá Birni Bjarghúsum.

 

KVÍYNDIÐ:

 

Leiti 4 menn:2 frá Halldóri Svanssyni Efri Þverá. 2 frá Viðari N-Þverá og sé Viðar þar gangnastjóri.

AFRÉTTARDALI:

 

Leiti 3 menn:3 frá Lofti Ásbjarnarstöðum og sjái Loftur um starfið.

 

ÁSABÆI:

Leiti 5 menn: 1 frá Guðmanni Harastöðum 2 frá Viðari Neðri-Þverá, 2 frá Birni Bjarghúsum, og sé Viðar þar gangnastjóri. Gangnastjóri ákveði í samráði við hlutaðeigandi hvenær smölun fari fram.

 

 

 

 

FYRIRSTAÐA:

 

Við Þverárbrú:2 frá Viðari N-Þverá.

Fyrirstaða við Þverárbrú, varni rennsli búfjár austur um.

 

 

ÖNNUR RÉTTARSTÖRF:

 

Marklýsing og

Töfludráttur: Viðar Neðri-Þverá og Halldór Súluvöllum.

Réttarstjórn:Viðar Neðri-Þverá

Hamarsrétt:Auðbjörgu Kristínu Magnúsdóttur er falin umsjón ásamt aðstoðarmanni.

 

GANGNAMAT 2021

 

Göngur í fjalli. kr. 6.000,-

Göngur á Ásabæikr 4.000,-

Töfludráttur og Marklýsing kr 2.000,-

Réttarstjórn kr. 6.000,-

Gangnastjórn kr. 3.000,-

Fyrirstaða kr 2.000,-

Hamarsrétt kr. 5.000,-

Gjald á kind 60/-.

Gjald á hross 120/-.

Gjald á hvert þúsund landverðs 12/-.

 

®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®

 

Ákveðið er að rétta sama dag og gengið er. Fari svo að veður hamli göngum, þennan tiltekna dag, skal þeim frestað með samráði gangnastjóra.

 

Gangnastjórar skulu hafa samráð um hvenær göngur hefjist um morguninn og stjórna sameiginlega innrekstri fjárins í safngirðinguna og má enginn gangnamaður yfirgefa safnið án leyfis, fyrr en því er lokið.

 

Gangnamenn skulu gæta þess, að smala í samhliða línu, eftir því sem tök eru á og fara ekki langt á undan þeim sem verða fyrir töfum.

 

Auk réttarstjórnar í fjár og hrossaréttum, fylgist réttarstjóri með og sjái um sundurdrátt á fénaði, sem til skila kann að koma í Þverárrétt síðar á haustinu.

 

Þeir sem ekki inna þau störf af hendi, sem á þá eru lögð, skv. framanrituðu, án löglegra forfalla, greiði þau sbr. reglugerð.

 

Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt utan varnarlínu Vatnsneshólfs, skal farga sem línubrjótum.

 

 

 

 

 

 

HROSSASMÖLUN: 2021

 

Ákveðið er, að skilarétt á hrossum verði laugardaginn 25. September nk. (síðasta laugardag í september) og hefjist kl. 12:30. Ókunnum hrossum sem kunna að koma fyrir á bæjum í smalamennsku fyrir réttirnar, sé komið í Þverárrétt.

Ennfremur er bændum heimilt að reka hross sín þann dag í réttina, til sundurdráttar og sýnis, eins og verið hefur.

 

 

 

 

 

______________________________

Björn Bjarnason.

 

 

 

 

________________________

Baldur Heimisson.

 

 

 

 

___________________________

Björn Viðar Unnsteinsson.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?