FJALLSKILABOÐ fyrir Þverárhrepp hinn forna, haustið 2020

FJALLSKILABOÐ fyrir Þverárhrepp hinn forna, haustið 2020

Laugardaginn 12. september 2020 skulu fara fram göngur og önnur fjallskil í Þverárhreppi hinum forna, svo sem hér segir:

TUNGUNA:

 

Leiti 4 menn:                         2 frá Elmari Tjörn, 2 frá Baldri Saurbæ og sé Baldur þar gangnastjóri.

 

ÚTFJALLIÐ OFAN VIÐ BRÚN:

 

Leiti 8 menn:                       2 Baldri Saurbæ, 1 frá Viðari N-Þverá, 1 frá  Báru Hólum, 1 frá Jóni Katadal, 1 frá Guðmundi í Krossanesi, 1 frá Guðmanni Harastöðum, 1 frá Halldóri Súluvöllum og sé Halldór þar gangnastjóri

                                                                 

                                                           ÚTFJALLIÐ AUSTANVERT:

Leiti 6 menn:

                                    1 frá Valdimar Kistu, 2 frá Viðari N-Þverá, 3 frá Birni Bjarghúsum  og 1. frá Ægissíðu. og sé Ingi frá Bjarghúsum  þar gangnastjóri.

                                    Efsti maður á útfjallið austanvert gangi vestan við Ægissíðuskál fram brúnir ofan við Kistu og niður á milli fjalla sunnan við Hóla.

 

FRAMFJALLIÐ:

 

Leiti 13 menn:           5 frá Jóni og Ingveldi  Böðvarshólum, 4 frá Kristjáni Breiðabólsstað,

1 frá Guðmundi Jóhannessyni,  1 frá Eggerti Klömbrum ,

 2 frá Tryggva Hvoli og sé Tryggvi þar gangnastjóri.

 

ÞVERÁRGIL, KAMBAR:

 

Leiti 4 menn:             2 frá Kristjáni Breiðabólsstað og 2 frá Birni Bjarghúsum.

 

KVÍYNDIÐ:

 

Leiti 4 menn:             2 frá Halldóri Svanssyni Efri Þverá. 2 frá Viðari N-Þverá og sé Viðar þar gangnastjóri.

AFRÉTTARDALI:

 

Leiti 3 menn:             3 frá Lofti Ásbjarnarstöðum og sjái  Loftur um starfið.

 

ÁSABÆI:

Leiti 5 menn:             1 frá Guðmanni Harastöðum 2 frá Viðari        

                                    Neðri-Þverá, 2 frá Birni Bjarghúsum ,og sé Viðar þar gangnastjóri.

                Og ákveði gangnastjóri í samráði við hlutaðeigandi hvenær

                                     smölun fari fram.

 

 

 

 

FYRIRSTAÐA:

 

Við Þverárbrú:          2 frá Viðari N-Þverá.

Fyrirstaða við Þverárbrú, varni rennsli búfjár austur um.

 

 

 

ÖNNUR RÉTTARSTÖRF:

 

Marklýsing og          

Töfludráttur:             Viðar Neðri-Þverá og Halldór  Súluvöllum.

Réttarstjórn:              Viðar Neðri-Þverá

Hamarsrétt:               Auðbjörg Kristín Magnúsdóttir er  falin umsjón ásamt aðstoðarmanni.

 

GANGNAMAT 2020          

 

Göngur í fjalli.                                   kr.  6.000,-

Göngur á Ásabæi                             kr   4000,-                  

Töfludráttur og Marklýsing            kr   2000-

Réttarstjórn                                      kr.  6.000,-                  

Gangnastjórn                                   kr.  3000,-                  

Fyrirstaða                                          kr   2000-

Hamarsrétt                                        kr.  5000,-

Gjald á kind                                       60/-.

Gjald á hross                                     120/-.

Gjald á hvert þúsund landverðs    12/-.

 

®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®

 

            Ákveðið er að rétta sama dag og gengið er. Fari svo að veður hamli göngum, þennan tiltekna dag, skal þeim frestað með samráði gangnastjóra.

 

            Gangnastjórar skulu hafa samráð um hvenær göngur hefjist um morguninn og stjórna sameiginlega innrekstri fjárins í safngirðinguna og má enginn gangnamaður yfirgefa safnið án leyfis, fyrr en því er lokið.

 

            Gangnamenn skulu gæta þess, að smala í samhliða línu, eftir því sem tök eru á og fara ekki langt á undan þeim sem verða fyrir töfum.

 

         Auk réttarstjórnar í fjár og hrossaréttum, fylgist réttarstjóri með og sjái um sundurdrátt á fénaði, sem til skila kann að koma í Þverárrétt síðar á haustinu.

 

            Þeir sem ekki inna þau störf af hendi, sem á þá eru lögð, skv. framanrituðu, án löglegra forfalla, greiði þau sbr. reglugerð.

 

            Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt utan varnarlínu Vatnsneshólfs, skal farga sem línubrjótum.

 

 

 

 

 

 

HROSSASMÖLUN: 2020

 

            Ákveðið er, að skilarétt á hrossum verði laugardaginn 26. September nk. (síðasta laugardag í september) og hefjist kl. 12:30.  Ókunnum hrossum sem  kunna að koma fyrir á bæjum í smalamennsku fyrir réttirnar, sé komið í Þverárrétt.

            Ennfremur er bændum heimilt að reka hross sín þann dag í réttina, til sundurdráttar og sýnis, eins og verið hefur.

 

 

 

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?