TUNGUNA:
Leiti 4 menn: 2 frá Elmari Tjörn, 2 frá Baldri Saurbæ og sé Baldur þar gangnastjóri.
ÚTFJALLIÐ OFAN VIÐ BRÚN:
Leiti 8 menn: 2 frá Tomma og Stellu Tjörn, 1 frá Viðari N-Þverá, 1 frá Báru Hólum, 1 frá Jóni Katadal, 1 frá Guðmundi í Krossanesi, 1 frá Guðmanni Harastöðum, 1 frá Halldóri Súluvöllum og sé Halldór þar gangnastjóri
ÚTFJALLIÐ AUSTANVERT:
Leiti 6 menn: 1 frá Ingibjörgu Geirsdóttir E-Þverá, 1 frá Valdimar Kistu, 2 frá Viðari N-Þverá, 2 frá Birni Bjarghúsum og sé Valdimar þar gangnastjóri.
Efsti maður á útfjallið austanvert gangi vestan við Ægissíðuskál fram brúnir ofan við Kistu og niður á milli fjalla sunnan við Hóla.
FRAMFJALLIÐ:
Leiti 15 menn: 3 frá Rögnu Böðvarshólum, 4 frá Kristjáni Breiðabólsstað,
1 frá Guðmundi Jóhannessyni, 1 frá Eggerti Klömbrum, 2 frá Birni Bjarghúsum, 2 frá Hörgshóli, 2 frá Tryggva Hvoli og sé Tryggvi þar gangnastjóri.
ÞVERÁRGIL, KAMBAR:
Leiti 2 menn: 2 frá Kristjáni Breiðabólsstað.
KVÍYNDIÐ:
Leiti 4 menn: 2 frá Halldóri Svanssyni Efri Þverá. 2 frá Viðari N-Þverá og sé Viðar þar gangnastjóri.
AFRÉTTARDALI:
Leiti 3 menn: 3 frá Lofti Ásbjarnarstöðum og sjái Loftur um starfið.
ÁSABÆI:
Leiti 5 menn: 1 frá Guðmanni Harastöðum 2 frá Viðari
Neðri-Þverá, 2 frá Birni Bjarghúsum og sé Viðar þar gangnastjóri.
Og ákveði gangnastjóri í samráði við hlutaðeigandi hvenær
smölun fari fram.
FYRIRSTAÐA:
Við Þverárbrú: 2 frá Viðari N-Þverá.
Fyrirstaða við Þverárbrú, varni rennsli búfjár austur um.
ÖNNUR RÉTTARSTÖRF:
Marklýsing og
Töfludráttur: Viðar Neðri-Þverá og Halldór Súluvöllum.
Réttarstjórn: Viðar Neðri-Þverá
Hamarsrétt: Þormóði Heimisson er falin umsjón.
GANGNAMAT 2017
Göngur í fjalli. kr. 4.500,-
Göngur á Ásabæi kr 2.500,- Töfludráttur og
Réttarstjórn kr. 4.500,- Marklýsing kr. 1000,-
Gangnastjórn kr. 2.000,- Fyrirstaða kr. 1500,-
Gjald á kind 60/-.
Gjald á hross 120/-.
Gjald á hvert þúsund landverðs 12/-.
®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®
Ákveðið er að rétta sama dag og gengið er. Fari svo að veður hamli göngum, þennan tiltekna dag, skal þeim frestað með samráði gangnastjóra.
Gangnastjórar skulu hafa samráð um hvenær göngur hefjist um morguninn og stjórna sameiginlega innrekstri fjárins í safngirðinguna og má enginn gangnamaður yfirgefa safnið án leyfis, fyrr en því er lokið.
Gangnamenn skulu gæta þess, að smala í samhliða línu, eftir því sem tök eru á og fara ekki langt á undan þeim sem verða fyrir töfum.
Auk réttarstjórnar í fjár og hrossaréttum, fylgist réttarstjóri með og sjái um sundurdrátt á fénaði, sem til skila kann að koma í Þverárrétt síðar á haustinu.
Þeir sem ekki inna þau störf af hendi, sem á þá eru lögð, skv. framanrituðu, án löglegra forfalla, greiði þau sbr. reglugerð.
Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt utan varnarlínu Vatnsneshólfs, skal farga sem línubrjótum.
HROSSASMÖLUN: 2017
Ákveðið er, að skilarétt á hrossum verði laugardaginn 30. September nk (síðasta laugardag í september) og hefjist kl. 12:30. Ókunnum hrossum sem kunna að koma fyrir á bæjum í smalamennsku fyrir réttirnar, sé komið í Þverárrétt.
Ennfremur er bændum heimilt að reka hross sín þann dag í réttina, til sundurdráttar og sýnis, eins og verið hefur.
Björn Bjarnason.
Tómas Örn Daníelsson.
Björn Viðar Unnsteinsson.