Fjallskilaboð fyrir Þverárhrepp hinn forna

FJALLSKILABOÐ

fyrir Þverárhrepp hinn forna, haustið 2015

 

Laugardaginn 12. september 2015 skulu fara fram göngur og önnur fjallskil í Þverárhreppi hinum forna, svo sem hér segir:

 

TUNGUNA:

 

Leiti 4 menn:              4 frá Baldri Saurbæ og sé Baldur þar gangnastjóri.

 

ÚTFJALLIÐ OFAN VIÐ BRÚN:

 

Leiti 8 menn:              3 frá Tomma og Stellu Tjörn, 1 frá Viðari N-Þverá, 1 frá  Báru Hólum, 1 frá Jóni Katadal,  1 frá Guðmanni Harastöðum 1 frá Halldóri Súluvöllum og sé Halldór þar gangnastjóri

                                                                  

                                                           ÚFJALLI Ð AUSTANVERT:

Leiti 7 menn:

                                    1 frá Ingibjörgu Geirsdóttir E-Þverá, 1 frá Ægissíðubúinu, 1 frá Valdimar Kistu, 2 frá Viðari N-Þverá, 2 frá Birni Bjarghúsum og sé Valdimar þar gangnastjóri.

 

                                     Efsti maður á útfjallið austanvert gangi vestan við Ægissíðuskál fram brúnir ofan við Kistu og niður á milli fjalla sunnan við Hóla.

 

FRAMFJALLIÐ:

 

Leiti 15 menn:            3 frá Konráði Böðvarshólum, 4 frá Kristjáni Breiðabólsstað,

1 frá Guðmundi Jóhannessyni,  1 frá Eggerti Klömbrum, 2 frá Birni Bjarghúsum, 2 frá Hjalta Hvoli, 2 frá Hörgshóli og sé Hjalti þar gangnastjóri.

 

ÞVERÁRGIL, KAMBAR:

 

Leiti 2 menn:              2 frá Kristjáni Breiðabólsstað.

 

KVÍYNDIÐ:

 

Leiti 4 menn:              2 frá Halldóri Svanssyni E-Þverá, 2 frá Viðari N-Þverá og sé Viðar þar gangnastjóri.

 

AFRÉTTARDALI:

 

Leiti 3 menn:              3 frá Lofti Ásbjarnarstöðum og sjái  Loftur um starfið.

 

ÁSABÆI:

Leiti 7 menn:             2 frá Birni Stóru-Borg 1 frá Guðmanni Harastöðum 2 frá Viðari        

                                    Neðri-Þverá, 2 frá Birni Bjarghúsum og sé Viðar þar gangnastjóri.

                Og ákveði gangnastjóri í samráði við hlutaðeigandi hvenær

                                     smölun fari fram.

 

 

 

 

FYRIRSTAÐA:

 

Við Þverárbrú:          2 frá Viðari N-Þverá.

Fyrirstaða við Þverárbrú, varni rennsli búfjár austur um.

 

Ofan við Efri-Þverá  1 frá Ingibjörgu Geirsdóttir Efri-Þverá

                                    Fyrirstaða varni því að fé renni niður á tún.

 

 

ÖNNUR RÉTTARSTÖRF:

 

Marklýsing og           

Töfludráttur:             Konráð Böðvarshólum og Halldór  Súluvöllum.

Réttarstjórn:              Viðar Neðri-Þverá

Hamarsrétt:               Þormóði Heimisson er  falin umsjón.

 

GANGNAMAT 2015

 

Göngur í fjalli.            kr.  4.500,-

Göngur á Ásabæi        kr   2.500,-                 Töfludráttur og                     

Réttarstjórn                 kr.  4.500,-                 Marklýsing                 kr.       1000,-

Gangnastjórn               kr.  2.000,-                 Fyrirstaða                   kr.       1500,-

Gjald á kind    55/-.

Gjald á hross   55/-.

Gjald á hvert þúsund landverðs  12/-.

 

®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®®

 

            Ákveðið er að rétta sama dag og gengið er. Fari svo að veður hamli göngum, þennan tiltekna dag, skal þeim frestað með samráði gangnastjóra.

 

            Gangnastjórar skulu hafa samráð um hvenær göngur hefjist um morguninn og stjórna sameiginlega innrekstri fjárins í safngirðinguna og má enginn gangnamaður yfirgefa safnið án leyfis, fyrr en því er lokið.

 

            Gangnamenn skulu gæta þess, að smala í samhliða línu, eftir því sem tök eru á og fara ekki langt á undan þeim sem verða fyrir töfum.

 

         Auk réttarstjórnar í fjár og hrossaréttum, fylgist réttarstjóri með og sjái um sundurdrátt á fénaði, sem til skila kann að koma í Þverárrétt síðar á haustinu.

 

            Þeir sem ekki inna þau störf af hendi, sem á þá eru lögð, skv. framanrituðu, án löglegra forfalla, greiði þau sbr. reglugerð.

 

            Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt utan varnarlínu Vatnsneshólfs, skal farga sem línubrjótum.

 

 

 

 

 

 

HROSSASMÖLUN:

 

            Ákveðið er, að skilarétt á hrossum verði laugardaginn 26. September nk. og hefjist kl. 12:30.  Ókunnum hrossum sem  kunna að koma fyrir á bæjum í smalamennsku fyrir réttirnar, sé komið í Þverárrétt.

            Ennfremur er bændum heimilt að reka hross sín þann dag í réttina, til sundurdráttar og sýnis, eins og verið hefur.

 

 

 

 

 

 

______________________________

Björn Bjarnason.

 

 

 

 

________________________    

Tómas Örn Daníelsson.

 

 

 

 

___________________________

Björn Viðar Unnsteinsson.

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?