Fasteignin að Fífusundi 3 til sölu

Fasteignin að Fífusundi 3 til sölu

Húnaþing vestra auglýsir til sölu fasteignina Fífusund 3 á Hvammstanga. Óskað er tilboða í eignina.

Um er að ræða fjögurra herbergja, steinsteypt raðhús með bílskúr, byggt árið 1978. Skráð stærð eignarinnar er 136,7 m2.

Eignin verður sýnd miðvikudaginn 28. júní kl. 15-17.

Tilboðum í eignina skal skilað í Ráðhús Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga, fyrir kl. 12, mánudaginn 10. júlí 2023. Skulu tilboð vera í lokuðu umslagi og innihalda upplýsingar um kaupanda, kaupverð og greiðsluáætlun. Tilboð verða opnuð sama dag kl. 14 í Ráðhúsinu.

Nánari upplýsingar veitir Björn Bjarnason, rekstrarstjóri, s. 771-4950, netfang bjorn@hunathing.is.

Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum.

Var efnið á síðunni hjálplegt?