Fasteign á Reykjatanga til sölu

Fasteign á Reykjatanga til sölu

Fasteignin Reykjatangi lóð, fasteignanr. 2132834 sem er í eigu Húnaþings vestra, er til sölu. Um er að ræða steinsteypt einbýlishús á einni hæð með bílskúr, byggt árið 1971. 

Húsið varð fyrir heitavatnstjóni og þarfnast nánast gagngerrar endurnýjunar að innan. Eignin selst í því ásigkomulagi sem hún er.

Tilboð óskast.

Nánari upplýsingar um eignina er að finna hér. Fyrirspurnum er svarað hjá Nes fasteignasölu.

Var efnið á síðunni hjálplegt?