Krakkasveifla 2026

Krakkasveifla 2026

KRAKKASVEIFLAN 2026

Skráning í Krakkasveifluna 2026 er hafin.

Boðið verður upp á skemmtilegt og uppbyggilegt starf fyrir öll börn á aldrinum 6–13 ára (1.–7. bekk) þar sem sköpun, hreyfing og útivera eru í forgrunni. Aðskilin dagskrá er fyrir 1.-4. bekk og 5. - 7. bekk. Hægt er að skrá börn í verðandi 1. bekk eftir sumarlokun (5. og 6. tímabil)

 

Meðal þess sem verður í boði:

  • Smíði og skapandi verkefni
  • Íþróttir og útileikir
  • Leiklist og fjölbreytt verkefni
  • Ferðir og ævintýri

Dagskrá 1. - 4. bekkur.

Dagskrá 5. - 7. bekkur.

Skráning

Nýtt í ár!
Krakkasveiflan og Kormákur taka höndum saman og bjóða upp á íþróttaæfingar sem verða hluti af dagskrá sumarsins. Einnig verður áfram hægt að skrá sig sérstaklega hjá Kormáki á æfingar ef börn vilja ekki taka þátt í Krakkasveiflunni.

Skráning er opin til og með 15. maí 2026
Eftir þann tíma er ekki hægt að tryggja að börn komist að

Nánari upplýsingar:
valdis@skoli.hunathing.is

Við hlökkum til að sjá sem flest börn í sumar í Krakkasveiflunni!

Var efnið á síðunni hjálplegt?