Skráning í vinnuskóla sumarið 2023 er hafin

Skráning í vinnuskóla sumarið 2023 er hafin

Vinnuskóli Húnaþings vestra 2023 stendur til boða fyrir 13-17 ára ungmenni
sem lögheimili hafa í Húnaþingi vestra eða eiga foreldri með lögheimili í sveitarfélaginu.

Vinnutími er frá klukkan 8:30-12:00 árdegis og 13:00-16:00 síðdegis, frá mánudegi til fimmtudags, á föstudögum lýkur vinnu kl. 12:00.

Verkbækistöð er í vinnuskólahúsinu að Norðurbraut 14 á Hvammstanga.

Aldur, laun og vinnutímabil

Aldur: Ungmenni fædd árið 2010 (7.b).
Laun: 718 kr. á tímann.
Vinnutímabil: Hafa kost á að vinna í 4 vikur, fyrir hádegi frá 19. júní - 14. júlí.
 
Aldur: Ungmenni fædd árið 2009 (8.b).
Laun: 798 kr. á tímann.
Vinnutímabil: Hafa kost á að vinna í 5 vikur frá 19. júní - 21. júlí.
 
 
Aldur: Ungmenni fædd árið 2008 (9.b).
Laun: 1.064 kr. á tímann.
Vinnutímabil: Hafa kost á að vinna í 6 vikur frá 7. júní - 18. júlí.
 
Aldur: Ungmenni fædd árið 2007 (10.b).
Laun: 1.729 kr. á tímann auk 13,04% orlofs.
Vinnutímabil: Hafa kost á að vinna í 7 vikur frá 1. júní - 19. júlí.
 
Aldur: Ungmenni fædd árið 2006 - 17. ára.
Laun: 1.995 kr á tímann auk 13,04% orlofs.
Vinnutímabil: Hafa kost á að vinna í 8 vikur frá 5. júní - 28. júlí.
 
Nánari upplýsingar um vinnuskólann er að finna HÉR
 

Innritun er hafin og fylla forráðamenn út eyðublað HÉR fyrir 26. maí nk.

Mikilvægt er að í skráningu komi fram ef um ofnæmi, sérþarfir eða einhverskonar frákvik er að ræða, sem gott væri fyrir flokkstjóra vinnuskólans að vita.

Var efnið á síðunni hjálplegt?