Endurnýjun raforkudreifikerfis í Hrútafirði

Frá framkvæmdum við rafstreng í Hrútafirði 2023
Frá framkvæmdum við rafstreng í Hrútafirði 2023

Undanfarin ár hefur Rarik unnið markvisst að endurnýjun raforkudreifikerfisins þar sem eldri loftlínur víkja fyrir jarðstrengjum. Því verkefni er nú að mestu lokið í Húnaþingi vestra, mun fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Árið 2023 var farið í strengvæðingu í Hrútafirði. Ekki náðist að klára verkefnið þá en nú er stefnt á að ljúka því og plægja háspennustreng frá Hvalshöfða að Hrútatungu. Loftlínur verða fjarlægðar í kjölfarið, líklega næsta vetur.

Um er að ræða 19 kV háspennustreng, samtals 6 km.  Áætlaður verktími er frá 1.-16. júní.

Var efnið á síðunni hjálplegt?