Endurbætur á íbúð Leigufélagsins Bríetar á Laugarbakka

Endurbætur á íbúð Leigufélagsins Bríetar á Laugarbakka

Í lok árs 2024 tók Leigufélagið Bríet yfir 4 íbúðir í eigu Húnaþings vestra á Gilsbakka á Laugarbakka. Hluti af samkomulaginu um yfirtöku eignanna var að Bríet réðist í endurbætur á húsunum og gerði upp íbúðirnar sem voru komnar á nokkuð viðhald. Leigufélagið hefur nú lokið við endurbætur á fyrstu íbúðinni og standa yfir sprunguviðgerðir að utan. Sömuleiðis er gert ráð fyrir að húsin verði máluð með haustinu.

Íbúðin sem nú hefur verið tekin í gegn er öll hin glæsilegasta eins og meðfylgjandi myndir sýna og verður flutt inn í hana innan tíðar. Félagið mun svo halda áfram endurgerð þeirra íbúða sem eftir standa á komandi misserum.

 

 

 

 

 

     

     

Var efnið á síðunni hjálplegt?