Eldvarnavikan

Eldvarnavikan

Síðasta vika nóvembermánaðar ár hvert er tileinkuð eldvörnum heimilanna í samstarfi við Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands og Landsambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna ásamt fjölmörgum öðrum styrktaraðilum, nefnd Eldvarnarvikan. Hluti af verkefnum Brunavarna Húnaþings vestra eru heimsóknir í 3. bekk grunnskóla og elsta árgang leikskóla.

Í leikskóla fá börnin kynningu á brunavörnum leikskólans og helstu hættur og að því loknu fáum við börnin í lið með okkur sem „aðstoðarmenn slökkviliðs“ kíkjum á hvar ÚT-ljós, reykskynjarar og slökkvitæki eru staðsett og fá þau viðurkenningarskjal frá slökkviliðinu því til staðfestingar ásamt verkefnamöppu, plakati og bókamerki.

Í grunnskólanum sýndum við þeim nýja teiknimynd frá LSS ásamt því að fara yfir eldvarnir heimilanna s.s slökkvitæki, reykskynjara, flóttaleiðir og þess háttar. Reynslan sýnir að átta ára börn eru mjög móttækileg fyrir fræðslu um eldvarnir og við þekkjum fjölmörg dæmi um að þeim hafi tekist að hafa vit fyrir foreldrum sínum um eldvarnir heimilisins eftir að hafa fengið slökkviliðið sitt í heimsókn. Þar fræðum við börnin um eldvarnarbúnað, helstu hættur og hvað ber að gera ef eldur kemur upp á heimili þeirra, en auðvitað fyrst og fremst hvað við gerum til þess að koma í veg fyrir að óhöpp eins og eldsvoða. Að þessu loknu fá börnin bók með eldvarnargetraun sem umsjónarkennari tekur saman og skilar inn, ásamt ýmsum varningi s.s. vasaljós, endurskinsmerki plakat ofl. til minningar um komu slökkviliðsins.

Þessar heimsóknir eru alltaf jafn skemmtilegar og hefur undirritaður oft hitt foreldra þessara barna á förnum vegi eftir eldvarnarviku og fengið staðfestingu á því að börnin fylgja þessu verkefni eftir af fullum þunga þegar heim er komið.

Var efnið á síðunni hjálplegt?