DREIFNÁM - AKSTURSSTYRKIR

Umsóknum um styrki vegna aksturs í dreifnám í Húnaþingi vestra á haustönn árið 2012, ber að skila á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, Hvammstanga sem fyrst. Sækja þarf um á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu sveitarfélagsins, einnig er hægt að nálgast þau á heimasíðunni www.hunathing.is undir liðnum eyðublöð. Með umsókninni þarf að fylgja með staðfesting skóla um að nemandi uppfylli reglur um námsframvindu. "Útlutunarreglur um akstursstyrki í dreifnám í Húnaþingi vestra" sem sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 12. apríl 2012 eru á heimasíðunni www.hunathing.is undir liðnum reglugerðir og samþykktir. Nemendur eru hvattir til að kynna sér reglurnar.

Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í síma 455-2400.

Ath. Sækja þarf um styrkinn innan mánaðar frá lokum annar, annars fellur hann niður.

Skrifstofustjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?