Byggðakvóti 2014

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2014/2015

7.11.2014

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 652/2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 985/2014 í Stjórnartíðindum

Árborg (Stokkseyri og Eyrarbakki)

Garð

Stykkishólm

Bolungarvík

Húnaþing vestra (Hvammstangi)

Blönduósbæ

Sveitarfélagið Skagafjörð (Sauðárkrókur og Hofsós)

Norðurþing (Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn)

Fjarðabyggð (Mjóifjörður og Stöðvarfjörður)

                      

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér.  

Vista skal eyðublöðin í eigin tölvu og senda hana sem viðhengi ásamt fylgigögnum í tölvupósti á netfangið: byggdakvoti@fiskistofa.is

Athygli er vakin á að umsókn í tölvupósti telst því aðeins móttekin að sjálfvirk staðfesting Fiskistofu á móttökunni berist sendandanum.

Athugið að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

 

Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2014.

Var efnið á síðunni hjálplegt?