Breyttar áherslur í innheimtumálum hjá Húnaþingi vestra

Húnaþing vestra hefur ákveðið að taka upp samstarf við Motus um innheimtu gjalda sveitarfélagsins sem ekki greiðast á réttum tíma. Markmiðið með samstarfinu er að tryggja jafnræði meðal íbúa, halda kostnaði vegna innheimtu vanskilakrafna í lágmarki og tryggja hagkvæmni í rekstri. Framvegis mun því bætast á vanskilakröfur ítrekunargjald í samræmi við upphæð skuldarinnar til að mæta þeim kostnaði

Sveitarfélagið skorar á þá sem eiga ógreidd gjöld að ganga frá þeim fyrir 1. febrúar n.k., en að þeim tíma liðnum mun Motus annast innheimtu skuldarinnar.

Sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?