Breyting á samþykktum um stjórn Húnaþings vestra

Breyting á samþykktum um stjórn Húnaþings vestra

Á 363. fundi sveitarstjórnar  þann 12. janúar sl.fór fram síðari umræða um breytingar á samþykktum um stjórn Húnaþings vestra. Um var að ræða nauðsynlegar breytingar vegna breyttrar skipan barnaverndarmála sem tóku gildi um áramót. Fyrri umræða fór fram á 362. fundi sveitarstjórnar þann 22. desember sl.

Breytingarnar hafa nú verið staðfestar af innviðaráðuneytinu og birtar í B-deild stjórnartíðinda. Hafa þær því tekið gildi. 

Samþykkt um breytingu á samþykkt um stjórn Húnaþings vestra nr. 588/2019, með síðari breytingum.

Samþykkt um stjórn Húnaþings vestra nr. 588/2019.

Var efnið á síðunni hjálplegt?