Breyting á nefndaskipan

Breyting á nefndaskipan

Með breytingu á samþykkt um stjórn Húnaþings vestra sem samþykktar hafa verið af sveitarstjórn og birtar í B deild stjórnartíðinda breytast heiti og hlutverk tveggja fastanefnda sveitarfélagsins. Breytingarnar miða að því að skerpa á hlutverkum viðkomandi ráða og gera þau öflugri á sínum sviðum. 

Skipulags- og umhverfisráð er nú skipulagsráð og mun eftir breytinguna fjalla um skipulags- og byggingamál og mál sem þeim tengjast. Skipulags- og byggingamál verða sífellt flóknari og umfangsmeiri og miðar breytingin að því að gera ráðið öflugra og sterkara í meðferð slíkra mála. Með ráðinu starfar skipulags- og byggingafulltrúi.

Veituráð er nú umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð og er eftir breytingu skipað fimm fulltrúum í stað þriggja áður. Ráðið fær mun umfangsmeira hlutverk en veituráð hafði. Auk þess að fjalla um málefni vatns-, frá og hitaveitna heyra umhverfis- og hreinlætismál undir ráðið, málefni er tengjast hollustuháttum og mengunarvörnum auk þess að ráðið hefur yfirumsjón með framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins.  Mikil samlegð er með þeim verkefnum sem ráðið hefur umsjón með en skiptust á milli á skipulags- og umhverfisráðs og byggðarráðs áður.  Með ráðinu starfar sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs en ekki hefur áður verið sérstakt ráð sem hefur umsjón með verkefnum sviðsins. Breytingin er liður í því að styrkja sviðið og getu þess til að sinna þeim verkefnum sem undir það heyra.

Skipulagsráð er skipað eftirfandi fulltrúum: 

Fríða Marý Halldórsdóttir, formaður (D)
Nína Axelsdóttir, varaformaður (B)
Guðni Þór Skúlason (B)
Tómas Bergsteinn Arnarsson (N)
Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir (N)

Varamenn
Elísa Ýr Sverrisdóttir (D)
Ingveldur Linda Gestsdóttir (B)
Kristófer Dagur Sigurjónsson (B)
Ómar Eyjólfsson (N)
Ragna Guðrún Snorradóttir (N)

Umhverfis, veitu og framkvæmdaráð er skipað eftirfarandi fulltrúum:

Magnús Magnússon, formaður (D)
Þorleifur Karl Eggertsson, varaformaður (B)
Kolbrún Stella Indriðadóttir (B)
Guðmundur Brynjar Guðmundsson (N)
Ína Björk Ársælsdóttir (N)

Varamenn
Örn Arnarson (D)
Gerður Rósa Sigurðardóttir (B)
Ingimar Sigurðsson (B)
Gunnar Sveinsson (N)
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir (N)

Var efnið á síðunni hjálplegt?