Bókun landbúnaðarráðs Húnaþings vestra vegna nýuppkomins riðusmits í Húna- og Skagahólfi

Mynd: Sigríður Ólafsdóttir
Mynd: Sigríður Ólafsdóttir
Á 204. fundi landbúnaðarráðs Húnaþings vesta var svohljóðandi bókað undir 3. dagskrárlið:
 
Landbúnaðarráð telur rétt að minnast bókunar á 200. landbúnaðarráðsfundi er haldinn var þann 5. apríl sl., sjá 5. dagskrárlið:

„Riða í Miðfjarðarhólfi. Í ljósi riðusmits sem upp kom í Miðfjarðarhólfi nýverið vill landbúnaðarráð leggja áherslu á að ráðist verði í breytingu á reglugerð um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar, nr. 651/2001, svo ekki þurfi að slátra fé með verndandi arfgerð gegn riðu komi upp smit. Samhliða þarf að stórauka arfgerðargreiningar á fé til að útrýma eins fljótt og auðið er áhættuarfgerð vegna riðu. Brýnt er að Miðfjarðarhólf ásamt öðrum sýktum svæðum í Húnaþingi vestra verði hér eftir í fyrsta forgangi varðandi kaup á gripum með verndandi arfgerð ásamt því að vera í forgangi við útdeilingu sæðis úr gripum með verndandi arfgerð. Einnig vill ráðið árétta enn og aftur mikilvægi þess að sauðfjárveikivarnarlínum sé viðhaldið með fullnægjandi hætti en á því hefur verið mikill misbrestur vegna skorts á fjármagni. Slíkt viðhald krefst stóraukins fjármagns frá hinu opinbera. Ráðið felur formanni og sveitarstjóra að óska eftir því við MAST að haldinn verði almennur upplýsingafundur fyrir bændur á svæðinu þar sem fjallað verði um stöðuna og þær breytingar sem fylgja í kjölfar smitsins.“

Vegna riðusmits sem upp kom í Húna- og Skagahólfi nýverið vill landbúnaðarráð leggja áherslu á að ráðist verði í breytingu á reglugerð um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar, nr. 651/2001, svo ekki þurfi að slátra fé með verndandi arfgerðir gegn riðu komi upp smit. Samhliða þarf að stórauka arfgerðargreiningar á fé til að útrýma eins fljótt og auðið er áhættuarfgerð vegna riðu. Brýnt er að sýkt svæði í Húnaþingi vestra verði hér eftir í fyrsta forgangi varðandi kaup á gripum með verndandi arfgerðir ásamt því að vera í forgangi við útdeilingu sæðis úr gripum með verndandi arfgerðir. Einnig vill ráðið árétta enn og aftur mikilvægi þess að sauðfjárveikivarnarlínum sé viðhaldið með fullnægjandi hætti en á því hefur verið mikill misbrestur vegna skorts á fjármagni. Slíkt viðhald krefst stóraukins fjármagns frá hinu opinbera.

Landbúnaðarráð vekur hér með sérstaka athygli á að um tvær bókanir er að ræða, annars vegar vegna riðu í Miðfjarðarhólfi og hins vegar riðutilfellis í Húna- og Skagahólfi. Glöggt fólk rekur líklega augun í að það er sáralítill munur á þessum tveimur bókunum sem skýrist af því að málefni riðuvarna hafa verið algerlega hundsuð af matvælaráðuneyti síðustu sjö mánuði. Nú standa vonir til þess, í kjölfar nýrra niðurstaðna í riðurannsóknum, að hægt sé að innleiða verndandi arfgerðir fljótt og vel með þeim fyrirvara að allar arfgerðir sem metnar voru mjög verndandi í prófunum verði viðurkenndar og þar með undanskildar niðurskurði.

Landbúnaðarráð leggur hér með til að hin seinni tillaga, sem byggir að svo gott sem öllu leyti á bókun 5. apríl síðastliðinn, verði studd af sveitarstjórn og skorar hér með á matvælaráðherra að breyta nú þegar reglugerð nr. 651/2001 á þann veg að sauðfé með verndandi arfgerðir verði hlíft við niðurskurði enda er það óumdeilanlega hagur bæði bænda og stjórnvalda að sjúkdómnum verði útrýmt eins fljótt og auðið er. Hið nýuppgötvaða smit kom fram í greiningarsýni í sláturhúsi og engin sjúkdómseinkenni hafa komið fram í hjörðinni. Jafnframt eru allir hrútar á búinu með verndandi arfgerðir.

Landbúnaðarráð leggur því til að viðkomandi bú verði nýtt sem tilraunabú varðandi það að hlífa villiarfgerðinni í þessu tilfelli, þ.e. skera einungis ær með áhættuarfgerð og sjá í framhaldinu hvort og þá hversu mikil hætta er á að villiarfgerð smitist ásamt því að fylgjast með því hvernig aðrar arfgerðir en ARR virka í reynd. Komi upp sjúkdómseinkenni yrði viðkomandi grip lógað samstundis. Með þessu móti yrði hægt að fjölga gripum með verndandi arfgerðir mun hraðar en ella ásamt því að vísindalegt gildi slíkrar tilraunar er ótvírætt.

 

Bókuninni hefur verið komið á framfæri við matvælaráðuneyti, starfshóp um útrýmingu riðu og yfirdýralækni.

Var efnið á síðunni hjálplegt?