Auglýst eftir umsóknum í Húnasjóð

Hvammstangi. Mynd: Sóley Halla Eggertsdóttir.
Hvammstangi. Mynd: Sóley Halla Eggertsdóttir.

Hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir stofnuðu Húnasjóð til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra. Samkvæmt skipulagsskrá fyrir Húnasjóð sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 12. október 2000 skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni. Árlegu framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls skal úthluta í styrki á ári hverju.

Nú er auglýst eftir umsóknum í Húnasjóð fyrir árið 2025. Aðeins er tekið á móti umsóknum sem skráðar eru á íbúagátt, undir fjölskyldusvið. Umsóknarfrestur er til og með 13. júlí 2025.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur sjóðsins sem uppfærðar voru á 1248. fundi byggðarráðs sem fram fór þann 30. júní 2025.

Nánari upplýsingar um sjóðinn.

Úthlutunarreglur Húnasjóðs.

Var efnið á síðunni hjálplegt?