Auglýsing - Verndarsvæði í byggð, Borðeyri

Auglýsing - Verndarsvæði í byggð, Borðeyri

Borðeyri - Verndarsvæði í byggð

 

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 8. mars 2018 að leggja tillögu til mennta- og menningarmálaráðherra um verndarsvæði í byggð innan Borðeyrar í Hrútafirði, sbr. 4.gr. laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015. Með þessu vill Húnaþing vestra staðfesta menningarsögulegt gildi verslunarstaðarins á Borðeyri. Svæðið sem um ræðir er 14.771 m2 á stærð eða tæplega 1,5 hektarar og stendur á landspildu sem kallast Borðeyrartangi.
Mörk þessa svæðis ná frá læk sem fellur úr grónum gilskorningi sem kallast Lækjardalur að
vestanverðu og meðfram sjólínunni á suðurhlið tangans frá þeim stað sem lækurinn fellur í
víkina allt fram á eyraroddann í austri. Þaðan liggja mörkin meðfram sjóvarnargarði til
norðvesturs þar til náð er beinni sjónlínu við brattan malarkamb rétt norðan við norðurgafl
gamla sláturhússins. Þaðan ná mörkin í hallandi línu meðfram kambnum til vesturs að
læknum. Markmið þess að gera hluta Borðeyrar að sérstöku verndarsvæði er að viðhalda og styrkja byggð á Borðeyri með þeim hætti að söguleg arfleifð kaupstaðarins fái notið sín og gildi hennar undirstrikað gagnvart heimamönnum jafnt sem aðkomufólki en þó ekki síst gagnvart komandi kynslóðum.

Til grundvallar tillögunni er fornleifaskráning fyrir Borðeyri frá 2008 og húsakönnun á Borðeyri frá 2017 ásamt ítarlegri umfjöllun um sögu Borðeyrar sem unnin var af dr. Vilhelm Vilhelmssyni sagnfræðingi vegna tillögunnar. Einnig er byggt á greiningu á svipmóti byggðarinnar í sögu og samtíð. Ítarlegri rökstuðningur með tillögu um verndarsvæði á Borðeyri ásamt fyrrnefndi umfjöllun um sögu byggðarinnar og greining á heildarsvipmóti er að finna í greinargerð sem fylgir tillögunni.

Tillagan liggur frammi í Ráðhúsi Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, frá 27. mars til og með 8. maí 2018.

Tillögu og greinagerð má einnig nálgast hér.

Hverjir þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta og öðrum þeim sem koma vilja sjónarmiðum á framfæri er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skilað til Skrifstofu Húnaþings vestra eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is.

Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri Húnaþings vestra.

Var efnið á síðunni hjálplegt?