Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa skv. ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018.  Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna fyrir Húnaþing vestra (Hvammstangi) sbr. auglýsingu nr. 5/2018 í Stjórnartíðindum

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér. 

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2018.

Var efnið á síðunni hjálplegt?