Auglýsing vegna skipulagslýsingar - deiliskipulag Borðeyrar

Auglýsing vegna skipulagslýsingar - deiliskipulag Borðeyrar

Efni: Auglýsing vegna skipulagslýsingar – deiliskipulag Borðeyrar

Sveitarstjórn (byggðarráð) Húnaþings vestra samþykkti á 1282. fundi sínum þann 13. júlí 2026 að auglýsa og kynna skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar gerðar nýs deiliskipulags fyrir Borðeyri.

Skipulagssvæðið er um 28 ha að stærð og nær yfir þéttbýlið á Borðeyri og aðliggjandi svæði. Helsta markmið skipulagsvinnunnar er að móta skýra stefnu og setja skilmála um framtíðaruppbyggingu á svæðinu.

 

Í deiliskipulaginu er meðal annars gert ráð fyrir að:

  • skilgreina lóðamörk og byggingarreiti,
  • afmarka nýjar íbúðarlóðir og þjónustulóðir,
  • skilgreina umferðarleiðir og bílastæði,
  • afmarka dvalarsvæði og útivistarstíga,
  • ákvarða staðsetningu og aðkomu að tjaldsvæði,
  • taka mið af sögulegu byggðarmynstri Borðeyrar og skilmálum verndarsvæðis í byggð á Borðeyri.

 

Fyrirhugað er að núgildandi deiliskipulag fyrir Borðeyri frá árinu 1997 falli úr gildi við gildistöku hins nýja deiliskipulags.

 

Skipulagslýsingin, uppdráttur og önnur fylgigögn eru aðgengileg hér, og í Skipulagsgátt HMS, www.skipulagsgatt.is.

 

Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 gefst umsagnaraðilum, íbúum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að koma á framfæri skriflegum ábendingum og sjónarmiðum áður en tillaga að deiliskipulagi verður fullmótuð.

 

Frestur til að skila inn ábendingum er til 18.september 2026.

Ábendingar, merktar „Borðeyri – skipulagslýsing“, skulu berast skriflega á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, á netfangið bogi.kristinsson@hunathing.is eða í gegnum Skipulagsgáttina.


Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og byggingarfulltrúi Húnaþings vestra

Var efnið á síðunni hjálplegt?