Auglýsing um óverulega breytingu á aðalskipulagi - Melstaður í Miðfirði

Auglýsing um óverulega breytingu á aðalskipulagi - Melstaður í Miðfirði

Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Húnaþings vestra

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti þann 13. maí 2026 óveruleg breyting á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014–2026 vegna Melstaðar í Miðfirði samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin tekur til landnotkunarreits VÞ9, verslun og þjónusta, við Melstað í Miðfirði. Í breytingunni felst að reiturinn er færður um u.þ.b. 500 m til suðvesturs frá núverandi staðsetningu. Breytingin felur ekki í sér stækkun landnotkunarreitsins og skilmálar reitsins, nýtingarheimildir, umfang fyrirhugaðrar starfsemi og meginforsendur gildandi aðalskipulags haldast óbreyttar.

Markmið breytingarinnar er að færa skilgreint verslunar- og þjónustusvæði á hentugri stað innan sama svæðis, m.a. með hliðsjón af aðkomu og tengingu við samgöngukerfið við Þjóðveg nr. 1 og Miðfjarðarveg nr. 704. Nánari útfærsla aðkomu, lóðarmarka, vegtenginga, byggingarreita og skilmála fer fram í deiliskipulagi.

 

Skipulagsfulltrúi Húnaþings vestra

Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

Var efnið á síðunni hjálplegt?