Auglýsing um kynningu skipulags- og matslýsingar tengivirkis í landi Reykja við Laugarbakka

Auglýsing um kynningu skipulags- og matslýsingar tengivirkis í landi Reykja við Laugarbakka

Efni: Auglýsing um kynningu skipulags- og matslýsingar.

Tengivirki í landi Reykja við Laugarbakka

 

Breyting á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014–2026 og nýtt deiliskipulag

Sveitarstjórn (byggðarráð) Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 13. júlí 2026 að auglýsa ogkynnaskipulags- og matslýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014–2026 og gerðar nýs deiliskipulags fyrir tengivirki og spennistöð í landi Reykja við Laugarbakka. Lýsingin er kynnt í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagssvæðið er um 1 ha að stærð og er staðsett sunnan Laugarbakka, í nágrenni við Laxárvatnslínu 1. Svæðið er nú skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi en fyrirhuguð breyting felur í sér að landnotkun þess verði breytt í iðnaðarsvæði.

 

Gert er ráð fyrir tveimur um 2.500 m² lóðum úr sameignarlandi Ytri-Reykja, L144115, og Syðri-Reykja, L144151. Önnur lóðin verður ætluð undir tengivirki Landsnets og hin undir spennistöð RARIK. Í deiliskipulagi verða meðal annars afmarkaðar lóðir og byggingarreitir og settir skilmálar um aðkomu, stærð og hæð mannvirkja, öryggissvæði, lagnaleiðir og frágang svæðisins. Aðkoma verður frá Miðfjarðarvegi (704), um núverandi aðkomu að Steinholti.

 

Markmið skipulagsvinnunnar er að skapa skipulagslegar forsendur fyrir uppbygginguna, styrkja flutnings- og dreifikerfi raforku á svæðinu og bæta afhendingaröryggi, jafnframt því sem leitast verður við að lágmarka rask og taka mið af staðháttum, náttúrufari og öðrum hagsmunum á svæðinu.

 

Skipulags- og matslýsingin er aðgengileg í Skipulagsgátt HMS www.skipulagsgatt.is og einnig má skoða hana hér.

Almenningi, umsagnaraðilum og öðrum hagsmunaaðilum er gefinn kostur á að kynna sér lýsinguna og koma á framfæri ábendingum og sjónarmiðum vegna fyrirhugaðrar skipulagsgerðar.

 

Frestur til að skila inn ábendingum er til 18. september 2026.

Ábendingar, merktar „Nestún/lífsgæðakjarni á Hvammstanga - skipulagslýsing“, skulu berast skriflega á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, á netfangið bogi.kristinsson@hunathing.is eða í gegnum Skipulagsgáttina.

 

 

Bogi Kristinsson Magnusen,

skipulags- og byggingafulltrúi Húnaþings vestra.

Var efnið á síðunni hjálplegt?