Efni: Auglýsing vegna skipulagslýsingar - deiliskipulag fyrir Nestún/lífsgæðakjarni á Hvammstanga
Sveitarstjórn (byggðarráð) Húnaþings vestra samþykkti á 1282. fundi sínum þann 13. júlí 2026 að auglýsa og kynna skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir Nestún á Hvammstanga.
Skipulagssvæðið er um 4,8 ha að stærð og er vestan Norðurbrautar á Hvammstanga. Norðurmörk liggja við mörk deiliskipulags Túnahverfis, austurmörk við Norðurbraut, suðurmörk fylgja Spítalastíg og vesturmörk liggja rétt utan strandlínu. Innan svæðisins eru sjúkrahús, heilsugæslustöð, fjögur íbúðarhús, íbúðir aldraðra og spennistöð Rarik.
Tilgangur skipulagsins er að setja fram skilmála um framtíðaruppbyggingu á svæðinu. Mikil eftirspurn hefur verið frá einstaklingum og félagi eldri borgara eftir skipulagningu íbúðarsvæðis. Hluti svæðisins innan ÍB-5 hefur fengið vinnuheitið lífsgæðakjarni, sem einkum er hugsaður fyrir eldra fólk. Markmiðið er að stuðla að fjölbreyttum búsetuformum, aðlaðandi umhverfi, samveru og öryggi.
Í deiliskipulaginu verður meðal annars gert ráð fyrir að:
- skilgreina eldri lóðamörk og byggingarreiti,
- afmarka nýjar íbúðarlóðir,
- skilgreina dvalarsvæði og bílastæði,
- afmarka göngu-, hjóla- og útivistarstíga um svæðið.
Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 eru landnotkunarreitir innan skipulagssvæðisins skilgreindir sem íbúðarsvæði ÍB-5, samfélagsþjónusta S-2 og opið svæði. Endurskoðun aðalskipulagsins stendur yfir og verða áherslur deiliskipulagsins í samræmi við endurskoðað aðalskipulag.
Skipulagslýsingin, uppdráttur og önnur fylgigögn eru aðgengileg hér, og í Skipulagsgátt HMS, www.skipulagsgatt.is.
Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 gefst umsagnaraðilum, íbúum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að koma á framfæri skriflegum ábendingum og sjónarmiðum áður en tillaga að deiliskipulagi verður fullmótuð.
Frestur til að skila inn ábendingum er til 18. september 2026.
Ábendingar, merktar „Nestún/lífsgæðakjarni á Hvammstanga - skipulagslýsing“, skulu berast skriflega á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, á netfangið bogi.kristinsson@hunathing.is eða í gegnum Skipulagsgáttina.
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og byggingarfulltrúi Húnaþings vestra