Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2002-2014

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 8. nóvember 2012 breytingu á Aðalskipulagi Húnaþings vestra 2002-2014 í landi Melstaðar í Miðfirði. Tillaga að breytingu skipulagsins var auglýst með viðeigandi hætti. Athugasemdir bárust frá einum aðila og hefur viðkomandi verið svarað að undangenginni umfjöllun skipulags- og umhverfisráðs og sveitarstjórnar Húnaþings vestra.

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri Húnaþings vestra.

Var efnið á síðunni hjálplegt?