Atvinnumál kvenna - styrkir - kynningarfundur.

Atvinnumál kvenna - styrkir - kynningarfundur.

Boðað er til kynningarfundar um styrki til atvinnumála kvenna sem nú eru lausir til umsóknar fimmtudaginn 11. febrúar kl. 11:00.

Að fundinum standa Vinnumálastofnun, landshlutasamtök og atvinnuþróunarfélög landshluta en umsóknarfrestur er til 1. mars n.k. Að þessu sinni eru frumkvöðlakonur á landsbyggðinni og konur í atvinnuleit hvattar til þess að sækja um.

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), ásamt styrkjum til markaðssetningar og vöruþróunar að hámarki 4.000.000

Styrkir eru veittir fyrir helmingi af heildarkostnaði verkefna.

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 40.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000.

 

Allir þurfa að skrá þátttöku og svo er sendur hlekkur á skráða á fundardag.

Skráning er hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfM1uM7T36CjRZGxS7aXp4MIy0t0Uy_RRJEUVq9nBzDaVjMWg/viewform

 

Umsóknarfrestur um styrki til atvinnumála kvenna er til og með 1. mars 2021.

Umsóknarfrestur um lán með lánatryggingu er til og með 15. febrúar 2021.

https://atvinnumalkvenna.is/ 

Var efnið á síðunni hjálplegt?