Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra

Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra

Markmið Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í sveitarfélaginu.  Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu.

Áherslur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra lúta að verkefnum sem stuðlað geta að auknum umsvifum, betri afkomu og rekstri fyrirtækja og þróun og nýsköpun í atvinnulífi í Húnaþingi vestra.Styrkir sem veittir eru úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir, ekki rekstrarstyrkir eða styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða greiða skuldir.

Væntanlegum umsækjendum og öðrum áhugasömum er bent hér á úthlutunarreglurumsóknareyðublað og lokaskýrslu.

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri í síma 455-2400 eða á netfanginu rjona@hunathing.is

Umsóknir skulu berast til sveitarstjóra Húnaþings vestra á sérstöku umsóknareyðublaði eigi síðar en 29. maí nk.

 

Hvammstangi 4. maí 2020
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?