Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra

Húnaþing vestra auglýsir hér með eftir umsóknum um úthlutun styrkja úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra. 

 

Markmið Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í sveitarfélaginu.  Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu.

 

Áherslur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra lúta að verkefnum sem stuðlað geta að auknum umsvifum, betri afkomu og rekstri fyrirtækja og þróun og nýsköpun í atvinnulífi í Húnaþingi vestra.Styrkir sem veittir eru úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir, ekki rekstrarstyrkir eða styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða greiða skuldir.

 

Væntanlegum umsækjendum og öðrum áhugasömum er bent á að úthlutunarreglur, umsóknareyðublað og fleiri gögn er varða Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hunathing.is

 

Nánari upplýsingar veitir Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri í síma 455-2400 eða á netfanginu gudny@hunathing.is

 

Umsóknir skulu berast til sveitarstjóra Húnaþings vestra á sérstöku umsóknareyðublaði eigi síðar en 31. maí nk.

 

Hvammstangi 30. apríl 2019
Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?