Atvinnu- og nýsköpunarsjóður auglýsir eftir umsóknum

Atvinnu- og nýsköpunarsjóður auglýsir eftir umsóknum

Húnaþing vestra auglýsir eftir umsóknum í  Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra.

Markmið Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í sveitarfélaginu. Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu.

Áherslur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra lúta að verkefnum sem stuðlað geta að auknum umsvifum, betri afkomu, rekstri fyrirtækja og þróun og nýsköpun í atvinnulífi í Húnaþingi vestra. Styrkir sem veittir eru úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir, ekki rekstrarstyrkir eða styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða greiða skuldir.

Væntanlegum umsækjendum og öðrum áhugasömum er bent á að kynna sér úthlutunarreglur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs. Umsóknareyðublað er að finna HÉR.

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri í síma 455-2400 eða á netfanginu rjona@hunathing.is

Umsóknir skulu berast á netfangið skrifstofa@hunathing.is eigi síðar en 18. júní nk.

Hvammstangi 27. maí 2022
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?