Áríðandi tilkynning frá Veitusviði Húnaþings vestra

Áríðandi tilkynning frá Veitusviði Húnaþings vestra

Vegna tengingar á hita- og vatnsveitu í nýtt hverfi við Lindarveg verður lokað fyrir heitt vatn á morgun fimmtudag frá klukkan 17 og mun lokunin standa yfir í um 5-6 tíma.

Heitavatns laust verður því á eftirfarandi stöðum: Nestún, Grundartún, Norðurbraut að undan skildu Hótel Hvammstanga, Bakkatún, Fífusundi, Kirkjuvegi, öllu Melahverfi og á svæðinu norðan Hvammstanga.

Lokað verður einnig fyrir kalt vatn á morgun fimmtudag klukkan 17 vegna færslu á stofnlögn við vatnstank fyrir Hvammstanga og mun lokunin standa yfir í 5-6 tíma. Kalda vatns laust verður því á öllu veitusvæði vatnsveitu Hvammstanga.

Þjónusturof hitaveitu - ábending til húsráðenda

  1. Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju með viðeigandi óhljóðum. 
  2. Húsráðendum er bent á að við viðgerðir kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
  3. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við pípulagningameistara.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Sviðstjóri veitu-, framkvæmda- og umhverfissviðs.

Var efnið á síðunni hjálplegt?