Álagning fasteignagjalda 2020

Álagning fasteignagjalda 2020

Álagningu fasteignagjalda í Húnaþingi vestra árið 2020 er nú lokið.

Vakin er athygli á að álagningarseðlar eru aðgengilegir á netsíðunni www.island.is undir „mínar síður“.   Gjaldskrá fasteignagjalda 2020 er birt á heimasíðu sveitarfélagsins hunathing.is undir stjórnsýsla/gjaldskrár.

Gjalddagar eru sex, þ.e. 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst.  Eindagi er 30 dögum síðar.

Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á skrifstofa@hunathing.is eða í síma 455-2400, meðal annars til að:

  • Skrá sig í boðgreiðslu fasteignagjalda
  • Óska eftir að fá senda álagningarseðla
  • Senda inn erindi vegna fasteignagjalda

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Var efnið á síðunni hjálplegt?